Stærsti straumurinn verður í fyrramálið

Sjávarstaðan var há í Grindavík í febrúar í fyrra. Aftur …
Sjávarstaðan var há í Grindavík í febrúar í fyrra. Aftur má búast við því í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur telur að ekki þurfi að hafa miklar áhyggjur af stórstreymi í Reykjavík, en að suður með sjó, eins og í Sandgerði og Grindavík, verði þess frekar vart.

„Stærsti straumurinn verður í fyrramálið. Við erum nálægt þessum stórstreymisstöðum sem koma í kjölfarið á því að nýtt tungl kviknar. Þá er reiknuð flóðahæð alltaf aðeins meiri,“ segir Einar í samtali við mbl.is.

„Það fer saman með þessu stórstreymi dálítil suðvestanalda, 8-10 metrar um það bil klukkan 18.“

Frekar að hafa áhyggjur suður með sjó

Einar segir að sennilega þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af stórstreyminu í Reykjavík eða við innanverðan Faxaflóa. 

„Suður með sjó, eins og í Sandgerði og í Grindavík, þá eru menn að fá þetta beint af úthafinu,“ segir Einar. Hætturnar séu frekar þar.

„Á móti kemur að þetta var kannski verra fyrr í dag. Oft þegar menn eru að velta fyrir sér stórstreymi og flóðahættu þá er lágur loftþrýstingur sem hækkar enn yfirborð sjávar en það er ekki sérlega lágur loftþrýstingur núna. Þetta er fyrst og fremst hvaða öldu og vind áhlaðandinn ber með sér.“

Einar telur ólíklegt að stórstreymið stofni vegum í hættu, það sé fyrst og fremst í höfnunum sem þurfi að gæta að aðstæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 419,05 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 542,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 320,27 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 164,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 143,98 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 219,36 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 194,03 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.5.24 Vala HF 5 Grásleppunet
Grásleppa 2.803 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 12 kg
Samtals 2.846 kg
11.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.082 kg
Þorskur 648 kg
Steinbítur 352 kg
Keila 62 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.152 kg
11.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.910 kg
Steinbítur 1.951 kg
Ýsa 1.266 kg
Hlýri 116 kg
Skarkoli 66 kg
Langa 40 kg
Ufsi 30 kg
Karfi 1 kg
Samtals 13.380 kg

Skoða allar landanir »