Þann 26. júní síðastliðinn kærði Mosfellsbær deiliskipulagsbreytingu Reykjavíkurborgar á Esjumelum til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Í tilkynningu Mosfellsbæjar segir að breytingin hafi í för með sér heimild til að reisa malbikunarstöð á lóðinni sem brjóti í bága við aðalskipulag Reykjavíkurborgar.

Deilan snýst um hvort heimilt sé að breyta stórum hluta athafnasvæðis Reykjavíkurborgar á Esjumelum í iðnaðarsvæði, þar sem gera má ráð fyrir starfsemi sem hefur mengun í för með sér.

Í tilkynningunni segir að samkvæmt skipulagslögum verður deiliskipulag að samræmast aðalskipulagi. Í aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir Esjumela er skýrt kveðið á um að athafnasvæðið á Esjumelum sé ekki ætlað undir iðnaðarstarfsemi, í heild sinni eða að hluta, og grunnskilgreining svæðisins sé athafnasvæði. Hins vegar eru vissar heimildir fyrir iðnaðarstarfsemi á athafnasvæðinu á Esjumelum. Í aðalskipulaginu felst því ákveðið misræmi sem nauðsynlegt er að skera úr um.

Reykjavíkurborg heldur því fram að malbikunarstöð rúmist innan aðalskipulags og að malbikunarstöð uppfylli allar nútímakröfur sem gerðar eru til mengunarvarna. Í tilkynningu Mosfellsbæjar segir að það sé í ósamræmi við skilgreiningu í gögnum borgarinnar þar sem malbikunarstöðvar eru skilgreindar sem „meira mengandi iðnaður“.

„Það hvaða starfsemi fer fram á Esjumelum skiptir Mosfellinga miklu máli og að lágmarki þarf hún að samræmast gildandi aðalskipulagi. Deiliskipulagsbreyting sem færir svæðið frá því að teljast athafnasvæði yfir í iðnaðarsvæði myndi gera starfsemi tveggja malbikunarstöðva mögulega,“ er haft eftir Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra Mosfellsbæjar.

„Malbikunarstöðvar teljast mengandi starfsemi auk þess að hafa í för með sér neikvæð umhverfisleg og sjónræn áhrif auk lyktarmengunar fyrir íbúa Mosfellsbæjar.

Reykjavíkurborg [hefur] úthlutað lóð þar sem fram mun fara moltugerð undir berum himni á Esjumelum, áform sem Mosfellsbær getur ekki sætt sig við enda fylgir moltugerð og annarri úrvinnslu lífræns úrgangs undir berum himni lyktarmengun sem ekki verður við unað.

Mosfellsbær hefur ítrekað komið þessum áhyggjum á framfæri við Reykjavíkurborg, meðal annars á formlegum fundi með borgarstjóra, en án árangurs og því er farin sú leið að kæra borgina þó svo að hún sé ekki algeng í samskiptum sveitarfélaga,“ segir Haraldur.