Enn skolar líkum upp á árbakka Ganges Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. maí 2021 16:47 Talið er að líkin hafi endað í ánni eftir misheppnaðar bálfarir við árbakkana. Getty/Ritesh Shukla Tugi líka til viðbótar skolaði upp á árbakka Ganges árinnar í norðurhluta Indlands í dag. Meira en fimmtíu líkum skolað á land í Gahmar síðustu daga og talið er að um fórnarlömb kórónuveirunnar sé að ræða.
Minnst fjörutíu líkum skolaði á land um 55 km niður eftir ánni frá Gahmar í gær. Óvíst er hvernig líkin enduðu í ánni en héraðsstjórn telur að gerð hafi verið tilraun til að brenna líkin í bálför við árbakkana sem hafi ekki farið betur en svo að þau hafi endað í ánni. Talið er að líkin séu öll af fórnarlömbum Covid en enn hafa ekki verið borin kennsl á þau. Blaðamaður á svæðinu sagði í samtali við breska ríkisútvarpið í dag að líkum hafi nú skolað upp á land í Gahmar í nokkra daga. Íbúar segja að þeir hafi kvartað undan nálykt í nokkra daga en að yfirvöld á svæðinu hafi ekki brugðist við fyrr en fréttir um líkfund í Bihar, suður af Gahmar, hafi borist í gær. Lögreglan í Gahmar hefur verið önnum kafin í dag við að veiða lík upp úr ánni og hefur dregið um 25-30 lík úr henni frá því á miðnætti. Líkin hafa öll verið grafin. Rannsókn er hafin á því hvernig líkin enduðu í ánni og hvaðan þau koma. Ástandið á Indlandi er enn mjög slæmt. Tæplega 330 þúsund greindust smitaðir af veirunni á síðasta sólarhringi. Þetta er annar dagurinn í röð sem fjöldi smita er undir 400 þúsund en þar á undan var hann yfir 400 þúsund fjóra daga í röð. Alls hafa 22.992.517 greinst með kórónuveiruna á Indlandi og 249.992 látist svo vitað sé.
Indland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Enn greinast hundruð þúsunda á Indlandi: Indverska afbrigðið á gátlista WHO Síðasta sólahring greindust 329.942 með Covid-19 á Indlandi. Þetta er annar dagurinn í röð þar sem fjöldi smita er undir 400 þúsund en þar á undan var hann yfir 400 þúsund fjóra daga í röð. 11. maí 2021 08:59 Afbrigðið sem geisar um Indland skilgreint sem alþjóðlegt áhyggjuefni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur gefið út að það afbrigði kórónuveirunnar sem farið hefur eins og eldur í sinu um Indland sé áhyggjuefni á alþjóðavísu. Rannsóknir sýna að afbrigðið kunni að vera meira smitandi en upprunaleg afbrigði veirunnar. 10. maí 2021 20:15 Líkum skolar upp á árbakka Ganges Minnst fjörutíu líkum hefur skolað upp á árbakka Ganges-árinnar í norðurhluta Indlands. Ekki er vitað hvaðan líkin koma en indverskir fjölmiðlar hafa leitt að því líkum að um fórnarlömb kórónuveirufaraldursins sé að ræða. 10. maí 2021 16:42 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Erlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Fleiri fréttir Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Sjá meira
Enn greinast hundruð þúsunda á Indlandi: Indverska afbrigðið á gátlista WHO Síðasta sólahring greindust 329.942 með Covid-19 á Indlandi. Þetta er annar dagurinn í röð þar sem fjöldi smita er undir 400 þúsund en þar á undan var hann yfir 400 þúsund fjóra daga í röð. 11. maí 2021 08:59
Afbrigðið sem geisar um Indland skilgreint sem alþjóðlegt áhyggjuefni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur gefið út að það afbrigði kórónuveirunnar sem farið hefur eins og eldur í sinu um Indland sé áhyggjuefni á alþjóðavísu. Rannsóknir sýna að afbrigðið kunni að vera meira smitandi en upprunaleg afbrigði veirunnar. 10. maí 2021 20:15
Líkum skolar upp á árbakka Ganges Minnst fjörutíu líkum hefur skolað upp á árbakka Ganges-árinnar í norðurhluta Indlands. Ekki er vitað hvaðan líkin koma en indverskir fjölmiðlar hafa leitt að því líkum að um fórnarlömb kórónuveirufaraldursins sé að ræða. 10. maí 2021 16:42