Erlent

Ætla að loka Arecibo vegna hættu

Samúel Karl Ólason skrifar
Arecibo-útvarpssjónaukinn er talinn í hættu á að hrynja.
Arecibo-útvarpssjónaukinn er talinn í hættu á að hrynja. AP/Danica Coto

Arecibo-útvarpssjónaukinn sögufrægi í Púertó Ríkó verður ekki starfræktur lengur. Um mikið högg fyrir geimvísindamenn er að ræða en margir reiða sig á sjónaukann til að finna plánetur, smástirni og jafnvel vísbendingar um vitsmunalíf í geimnum. Skemmdir hafa orðið á sjónaukanum og segja forsvarsmenn hans að of hættulegt sé að starfrækja hann áfram.

National Science Foundation, sem er óháð stofnun en er fjármögnuð af ríkinu, á sjónaukann en vísindamenn við Háskóla Mið-Flórída, hafa séð um rekstur hans á undanförnum árum.

Einn af vírunum sem heldur sjónaukanum uppi losnaði í sumar og olli miklum skemmdum á sjónaukanum. Þegar hefja átti viðgerðir á honum fyrr í þessum mánuði gaf annar og mikilvægari vír sig. Sérfræðingar óttast að aukið álag sé nú á þeim vírum sem eftir eru og gefi fleiri sig gæti 900 tonna sjónaukinn hrunið til jarðar.

Sjá einnig: Sögufrægur útvarpssjónauki sagður að hruni kominn

Sjónaukinn er einn sá stærsti í heimi og er staðsettur í frumskógi Púertó Ríkó. Hann hefur verið í notkun frá 1963 og hefur sést í kvikmyndum eins og GoldenEye og Contact. Þá hefur sjónaukinn verið mjög vinsæll ferðamannastaður.

Sjónaukinn samanstendur úr rúmlega 300 metra disk og 900 tonna palli sem hangir í um 150 metra hæð yfir diskinum.

Forsvarsmenn Arecibo grunar að galli hafi leitt til þess að vírinn losnaði í sumar. Það kom verkfræðingum þó verulega á óvart þegar mikilvægari vírinn slitnaði svo fyrr í þessum mánuði. Talið var að hann væri einungis að halda um 60 prósent hámarksþyngdar hans.

Þá segja áðurnefndir forsvarsmenn að jafnvel þó skemmdirnar yrðu lagaðar væri ekki hægt að nota sjónaukann til lengdar.

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun fyrir NSF að taka, en öryggi fólks er í forgangi,“ hefur AP fréttaveitan eftir Sean Jones, einum af yfirmönnum NSF. „Við gerum okkur grein fyrir því hve miklu Arecibo skiptir fyrir samfélagið og Púertó Ríkó.“

Hann sagði einnig að í rauninni væri engin leið í boði til að halda áfram rekstri sjónaukans og í senn tryggja öryggi fólks þar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×