Norsku skipin mætt í íslenska lögsögu

Barði NK hefur landað mestri loðnu meðal íslenskra skipa á …
Barði NK hefur landað mestri loðnu meðal íslenskra skipa á yfirstandandi vertíð. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Smári Geirsson

Loðnuvertíðin er rétt í startholunum og hafa aðeins fjögur íslensk uppsjávarskip landað loðnu það sem af er vertíð. Þá eru norsku skipin einnig ný byrjuð á veiðum í íslenskri lögsögu, en grænlensku skipin hafa verið á veiðum í smá tíma, hafa Polar Amaroq og Polar Ammassak bæði landað fyrir austan.

Alls hafa íslensku skipin landað 5.581 tonni af loðnu samkvæmt skráningu Fiskistofu en skipin hafa 139 þúsund tonna kvóta. Mesta afla hefur Barði NK landað eða 2.281 tonn af loðnu. Næst mest hefur Beitir NK borið að landi eða u 1.331 tonn. Þar á eftir fylgir Venus NS með 1.244 tonn og svo Víkingur AK með 725 tonn.

Sem fyrr segir eru Norðmennirnir nýbyrjaðir og og barst fyrsta loðna vertíðarinnar til vinnslu á Fáskrúðsfirði þegar Vendla landaði á 300 tonnum á sunnudag sem fengust 50 mílum austur af firðinum. Aflinn verður frystur og seldur til Austur-Evrópu, að því er fram kemur á vef Loðnuvinnslunnar.

Færði útgerðin norðmönnunum um borð Vendlu væna köku vegna þessara tímamóta.

Áhöfnin á Vendlu frá Noregi fékk köku þegar skipið kom …
Áhöfnin á Vendlu frá Noregi fékk köku þegar skipið kom með fyrsta loðnufarm vertíðarinnar til Fáskrúðsfjarðar. Ljósmynd/Loðnuvinnslan

Erlendu skipin með 79 þúsund tonn

Alls hafa grænlensk, færeysk og norsk skip heimildir til að veiða rúm 79 þúsund tonn af loðnu í íslenskri efnahagslögsögu. Þar af fara norsku skipin með um 40 þúsund tonn, grænlensku rúm 30 þúsund tonn og þau færeysku tæp 9 þúsund tonn.

Norsku skipin búa við þær takmarkanir samkvæmt gildandi samningum að þau mega meðal annars aðeins nýta loðnunót og ekki mega vera fleiri en 30 norsk skip á loðnuveiðum í lögsögunni hverju sinni.

Á síðustu vertíð voru norsku skipin með rúmlega 140 þúsund tonna kvóta, en ekki tókst þeim að veiða allan þann afla áður en umsömdu veiðitímabili lauk. Féllu því 52 þúsund tonn sem út af stóðu til íslenskra skipa.

Vonir um endurskoðun

Útgefnar veiðiheimildir í loðnu fyrir öll skip nemur 218 þúsund tonnum í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um hámarksveiði, en bundnar eru vonir við að á næstu dögum verði tilkynnt um að mælst hafi töluvert af loðnu í vetrarleiðangri og að það gefi tilefni til að endurskoða veiðiráðgjöfina.

Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, upplýsti í gær að mælingin hafi gengið vel en kvaðst ekki geta sagt neitt frekar um mögulegar niðurstöður stofnmælingarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 442,02 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 269,93 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 157,07 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,45 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 442,02 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 269,93 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 157,07 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,45 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »