Öruggur sigur Bayern gegn Barcelona

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Robert Lewandowski skoraði tvö mörk fyrir Bayern München í kvöld.
Robert Lewandowski skoraði tvö mörk fyrir Bayern München í kvöld. Pedro Salado/Quality Sport Images/Getty Images

Bayern München vann öruggan 3-0 sigur þegar að liðið heimsótti Barcelona í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu.

Þýsku gestirnir voru mun sterkari aðilinn í kvöld og stjórnuðu leiknum lengst af. Liðið var vel skipulagt og gaf fá sem engin færi á sér. 

Thomas Müller kom gestunum yfir rúmum tíu mínútum fyrir hálfleik með skoti sem fór af varnarmanni og skildi Marc-Andre ter Stegen eftir varnarlausan í marki Börsunga.

Staðan var því 1-0 þegar að flautað var til hálfleiks, en það sama var uppi á teningnum í seinni hálfleik. Gestirnir stjórnuðu leiknum og heimamenn áttu fá svör.

Á 56. mínútu á Jamal Musiala skot fyrir utan teig sem hafnaði í stönginni. Pólverjinn Robert Lewandowski var fyrstur að átta sig og potaði frákastinu yfir línuna og kom Bayern München í 2-0.Lewandowski heldur því áfram að bæta félagsmetið yfir mörk skoruð í flestum leikjum í röð, en þetta var átjándi leikurinn í röð sem að hann skorar.

Hann var ekki hættur, en fimm mínútum fyrir leikslok átti Serge Gnabry skot í stöng og hver annar en Robert Lewandowski var mættur til að hirða frákastið og gulltryggja sigur gestanna.

Fleiri urðu mörkin ekki og Bayern München vann því þægilegan 3-0 sigur. Sigur Bayern var aldrei í hættu, en leikmenn Barcelona áttu ekki eitt einasta skot á markið í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira