Fjórfaldi meistarinn hættur

Rob Gronkowski og Tom Brady fagna sigri í Super Bowl …
Rob Gronkowski og Tom Brady fagna sigri í Super Bowl árið 2019. AFP

Ron Gronkowski, einn besti innherji NFL-deildarinnar í ruðningi frá upphafi, hefur lagt skóna á hilluna eftir magnaðan feril.

Gronkowski varð fjórum sinnum NFL-meistari á ferlinum, þrisvar með New England Patriots og einu sinni Tampa Bay Buccaneers. Hann og Tom Brady, einn frægasti leikstjórnandi allra tíma, voru miklir mátar og náðu afar vel saman á vellinum.

Enginn innherji hefur skorað eins mörg snertimörk í úrslitakeppninni og Gronkowski en hann gerði fimmtán slík á farsælum ferli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert