Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum.
Hann er vinsamlegast beðinn að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir að hringja í lögregluna. Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.
Þótt myndirnar séu óskýrar má ætla að þær geti gefið vísbendingar um hver maðurinn er, segir í tilkynningunni.