Áhugaverðir sex mánuðir að baki Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 19. september 2021 13:19 Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur. Vísir/Vilhelm Eldgosið í Geldingadölum hefur í dag staðið yfir í hálft ár og er nú það langlífasta á 21. öldinni, hefur staðið samfleytt yfir í 184 daga borið saman við fyrra met sem var í Holuhrauni en þar stóð gosið yfir í 181 dag.
Gosið hófst þann nítjánda mars eftir hrinu skjálfta sem staðið hafði linnulaust í tæplega eitt og hálft ár og boðað var til íbúafundar í Grindavík þann tuttugasta janúar í fyrra vegna yfirvofandi hættu á eldgosi. Ekkert lát var á skjálftunum fyrr en í mars á þessu ári þegar loks létti á spennu og gosið hófst. Mun betur fór en á horfðist því gosið reyndist lítið og hafa nú tæplega þrjú hundruð þúsund ferðir verið farnar að gosstöðvunum. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir þetta hafa verið áhugaverða sex mánuði. „Kannski stærsta breytingin sem við höfum séð er að dalir sem voru þarna í Fagradalsfjalli eru horfnir undir hraun. Það hefur í raun og verið að myndast nýtt landslag. Við erum búin að hlaða þarna upp ansi myndarlegum gíg sem rís allt að 130 til 140 metra yfir upprunalega yfirborðið,” segir Þorvaldur. Hætta skapaðist við gosstöðvarnar í fyrrinótt þegar hraun tók að streyma niður Nátthaga af fullum krafti, líkt og sjá má á þessu myndskeiði. Töluverð virkni var í gosinu í gær en hún virðist hafa lognast út af um klukkan 18 í gærkvöld. Þorvaldur segir gosið síbreytilegt og fasana orðna ansi marga. Hraunið sjálft sé hins vegar ekki síður áhugavert. „Við erum með mjög fjölbreytilegar hrauntegundir í þessari hraunbreiðu sem hefur myndast í gosinu. Við forum alveg frá helluhrauni yfir á apalhraun og allar tegundir þar á milli. Að sama skapi kemur það á óvart vegna þess að yfirleitt hafa menn tengt myndun einstakra hraunategunda við framleiðnina í gosinu og eins hegðunina í gígnum. En í þessu gosi virðast eiginlega engin tengsl vera þar á milli,” segir hann og bætir við að flest bendi til þess að gosið verði langlíft. Í færslu frá Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands segir að órói hafi farið lækkandi síðan í gær, og hafi verið að fjara út í hátt í sólarhring. Það sé þróun sem sé nokkuð úr takti við það sem verið hefur. „Öflugum goshrinum í Fagradalsfjalli hafa síðustu mánuði gjarnan fylgt minni virkni, jafnvel goshlé. Í öllum tilfellum hefur virknin hins vegar fallið mjög skarpt eftir goshrinurnar og yfirborðsvirkni dottið alfarið niður á örfáum mínútum. Hvaða breytingar eru að eiga sér stað í gosvirkninni núna er hins vegar ómögulegt að segja til um,“ segir í færslunni.
Eldgos í Fagradalsfjalli Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira