Líst illa á veðrið en er bjartsýn á að Glódís spili fyrir eitt besta lið heims Sindri Sverrisson skrifar 21. september 2020 15:22 Caroline Seger var tolleruð eftir að Svíþjóð vann England í leiknum um bronsverðlaunin á HM í fyrra. vísir/getty
Caroline Seger, hinn þrautreyndi fyrirliði Svía, telur að Glódís Perla Viggósdóttir eigi eftir að spila fyrir eitt af bestu félagsliðum heims. Hún er vör um sig fyrir stórleikinn við Ísland annað kvöld. Ísland og Svíþjóð mætast í toppslag F-riðils undankeppni EM í fótbolta á Laugardalsvelli á morgun kl. 18, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Seger viðurkennir að hún sé ekkert yfir sig hrifin af veðrinu á Íslandi, og hefur Glódís sem er liðsfélagi hennar hjá Rosengård í Svíþjóð strítt henni síðustu daga með upplýsingum um rok og rigningu. Spáin fyrir morgundaginn er þó reyndar góð. Veit hvað þær íslensku eru harðar af sér „Hún [Glódís] þekkir mig vel og veit að ég er ekki hrifin af svona veðri. En þetta er eins fyrir alla og við verðum bara að takast á við það. Það verður ekki sól og 40 gráður, svo ég er tilbúin,“ sagði Seger eftir æfingu sænska landsliðsins á Laugardalsvelli í dag. Hún er búin undir mikinn slag á morgun: „Það er langt síðan að ég hef mætt Íslandi en ég þekki nokkra leikmenn úr liðinu. Ég veit af fenginni reynslu að þær eru mjög harðar af sér, það eru sterkir karakterar í liðinu og þær eru dugnaðarforkar. Þær skora líka mikið af mörkum, úr föstum leikatriðum, og skyndisóknirnar eru mjög góðar hjá Íslendingunum. Við þurfum að vera mjög vel á varðbergi, enda hjálpar það þeim líka að spila á heimavelli.“ Seger hefur á sínum langa og farsæla ferli meðal annars spilað með Söru Björk Gunnarsdóttur í Malmö um skamman tíma 2011, en frá árinu 2017 hefur hún verið liðsfélagi Glódísar Perlu Viggósdóttur í sama félagi sem nú nefnist reyndar Rosengård. Glódís enn ung en gömul í anda „Sara hefur átt stórkostlegan feril hingað til. Hún hefur spilað með bestu liðunum, Wolfsburg og Lyon, og heldur áfram að þróast sem leikmaður sem spilar teiganna á milli. Glódísi þekki ég mjög vel eftir að hafa spilað með henni í Svíþjóð. Hún er enn ung en samt mjög góð, og gömul í anda. Hún er með mjög góðar, langar sendingar, sterkur varnarmaður sem leggur hart að sér og er mikill liðsmaður. Vonandi stendur hún sig samt ekki vel á morgun,“ sagði Seger hlæjandi. Og hún er viss um að Glódís geti komist að í betri deild en þeirri sænsku, sem þó er nokkuð sterk: „Já, að sjálfsögðu. Ég er viss um að hún á stórkostlega framtíð fyrir sér. Það er mjög gott skref fyrir hana að spila fyrir Rosengård en ég held að við munum sjá Glódísi í betra liði, einu af þeim stærstu í Evrópu, og það verður gaman að fylgjast með ferðalagi hennar,“ sagði Seger. Allir leikmenn sænska hópsins æfðu í dag sem þýðir að framherjinn Stina Blackstenius gæti komið inn í liðið eftir að hafa misst af 8-0 sigrinum gegn Ungverjalandi á fimmtudag vegna meiðsla. „Við áttum mjög góðan leik gegn Ungverjum en ég veit að leikurinn við Ísland verður allt öðruvísi. Þetta verður mikið erfiðari leikur og hann mun reyna mun meira á okkur líkamlega. Við erum tilbúnar og vonandi getum við náð góðum úrslitum.“ Klippa: Caroline Seger fyrir leikinn við Ísland
EM 2021 í Englandi Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Sjá meira