Ástandið erfitt meðal atvinnulausra Pólverja á Íslandi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 17. nóvember 2020 20:10 Þær Agnieszka Ewa Ziolkowska varaformaður Eflingar og Katarzyna Paluch pólskur ríkisborgari sem er atvinnulaus segja að ástandið sé erfitt. Aldrei hafa fleiri pólverjar verið atvinnulausir. Vísir/Egill Aðalsteinsson
Pólsk kona sem er atvinnulaus hefur brugðið á það ráð að læra íslensku í atvinnuleysinu sem hún vonar að muni hjálpa sér við að fá vinnu. Rúmlega fimmti hver erlendur ríkisborgari á Íslandi er atvinnulaus og varaformaður Eflingar segir að margir kvíði jólunum. Nauðsynlegt sé að tryggja hópnum desember uppbót. Í lok október voru 4.063 atvinnulausir með pólskt ríkisfang eða tuttugu prósent allra atvinnulausra. Rúmlega tuttugu þúsund Pólverjar eru búsettir hér á landi samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands en þetta þýðir að fimmti hver Pólverji er atvinnulaus. Lærir íslensku í atvinnuleysinu Katarzyna Paluch er ein þeirra en hún hafði unnið sem leiðsögumaður í þrjú ár þegar hún missti vinnuna í október. „Ég byrjaði að læra íslensku. Ég hef lært aðeins sjálf þessi ár sem ég hef verið hér en það er alltaf öðruvísi að fara í skóla. Vinnumálastofnun bauð hjálp við þetta svo nú eru margir farnir að læra íslensku, sennilega til að auka líkurnar á að fá vinnu.,“ segir Katarzyna og bætir við að hún hafi sem betur fer eignast nokkra góða vini hér á landi sem auðveldar henni lífið í atvinnuleitinni. „Það er virkilega hjálplegt,“ segir hún. Það er því miður ekki staðan hjá öllum atvinnulausum Pólverjum. Katarzyna Paluch hefur brugðið á það ráð að ræða íslensku í atvinnuleysinu sem hún vonast til að hjálpi til við að finna vinnu. Hún segist fegin því að eiga nokkra góða vini á Íslandi sem hjálpi mikið. VÍSÍR/EGILL AÐALSTEINSSON Þeir hafa aldrei verið fleiri að sögn varaformanns Eflingar. „Það er mjög erfitt fyrir útlendinga að vera atvinnulausir. Við höfum ekki tengslanet, fjölskyldunet, svo það er mikil hætta á að maður verði niðurdreginn.,“ segir Agnieszka Ewa Ziolkowska, varaformaður Eflingar. Flestir hafi verið láglaunafólk og margir kvíði jólunum. Katarzyna bætir við að tungumálið geri atvinnuleitina erfiðari. „Tungumálið getur verið vandamál því mörg okkar tala ekki íslensku og sumir Pólverjar tala enga ensku og nú held ég að öll störfin séu fyrir fólk sem talar íslensku,“ segir Katarzyna. Hún vill þó vera hér áfram og segist bjartsýn á að fá starf fyrir næsta sumar. Meðfram íslenskunáminu hefur hún unnið að gerð tímarits fyrir leiðsögumenn og aðra í ferðaþjónustu sem kemur út í desember. Atvinnurekendum finnist auðveldara að segja útlendingum upp Agnieszka segir mörg dæmi um að fólki af erlendum uppruna sé sagt upp frekar en Íslendingum. „Það er af því að þeir vilja frekar halda íslenska starfsfólkinu frekar en útlendingum,“ segir Agnieszka. Einnig að atvinnurekendum finnist auðveldara að segja upp fólki af erlendum uppruna. „Þeir halda að fólkið fari aftur til heimalandsins en fyrir mörg þeirra er heimalandið hérna. Fólk hefur kannski búið hér í mörg ár,“ segir hún. Flestir láglaunafólk sem kvíðir jólunum Agniesza leggur áherslu á að flestir atvinnulausir pólverjar hafi verið láglaunafólk og margir kvíði fyrir jólunum. „Þannig þetta fólk á engann sparnað til að lifa á. Það er því gríðarlega mikilvægt að þeir fái greidda desemberuppbót. Stjórnvöld eru að hjálpa fyrirtækjum en það er gríðarlega mikilvægt að hjálpa fólki sem býr hér, borgar skatta og eiga hjálpina virkilega skilið,“ segir Agniezka. Drífa Snædal forseti ASÍ hefur áður sagt nauðsynlegt að tryggja atvinnuleitendum desemberuppbót sambærilega þeirri sem er að finna í kjarasamningnum á almennum vinnumarkaði.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Vinnumarkaður Innflytjendamál Kjaramál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Sjá meira