Lagt til að lögverndun bókara, viðskipta- og hagfræðinga verði hætt Sunna Sæmundsdóttir skrifar 17. nóvember 2020 12:35 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, stendur að baki frumvarpinu. Vísir/Vilhelm
Drög að frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks var birt í samráðsgátt stjórnvalda í dag. Í því er meðal annars horft til nýlegrar skýrslu OECD og lagt til að viðurkenningu bókara verði hætt. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra stendur að baki frumvarpinu og er þar að finna ýmsar breytingar á núgildandi lögum. Meðal annars er lagt er til að lög um rétt manna til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga verði felld brott. Í greinargerð með frumvarpinu segir að menntun og starfsheiti þeirra hafi fest sig í sessi og að lögverndun starfsheitanna veiti engin sérstök réttindi. „Vísast um það einnig til skýrslu OECD um samkeppnismat á regluverki byggingariðnaðar og ferðaþjónustu þar sem fram kemur að lögverndun starfsheita sé ein tegund samkeppnishindrunar á viðkomandi sviðum,“ segir í greinargerð. Námið orðið viðurkennt Einnig er lagt til að viðurkenningu bókara verði hætt og að próf þess efnis verði aflögð. Samkvæmt núgildandi lögum þarf fólk að þreyta þrjú próf til að hljóta viðurkenningu og í greinargerð segir að þeir sem hafa lokið hluta þeirra geti þó lokið ferlinu. Próf verði því haldin á árunum 2021 og 2022. Í greinargerð með frumvarpinu segir að nám bókara sé orðið viðurkennt í atvinnulífinu og að ekki sé lengur talin þörf á að ráðherra hlutist til um að veita viðurkenningu og standa fyrir sérstökum prófum. „Fyrsta skrefið í þessu ferli var tekið með lagabreytingu árið 2011 þegar felld var brott skylda ráðherra til að hlutast til um að námskeið yrðu haldin. Talið er tímabært að taka næsta skref og er lagt til að viðurkenningu ráðherra verði hætt og lögverndun starfsheitisins því aflögð.“ Lögverndun bakara og ljósmyndara stendur Í skýrslu OECD sem vísað er til í frumvarpinu kemur fram að Íslendingar lögvernda flestar starfsgreinar allra Evrópuríkja. Lagt var til að þetta yrði endurskoðað og í skýrslunni var sérstaklega lagt til að lögverndun bakara og ljósmyndara yrði afnumin. Landssamband bakarameistara gerði alvarlegar athugasemdir við það og sagði stofnunina hafa farið langt umfram verksvið sitt. Í drögunum sem voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í morgun eru hins vegar ekki lagðar til neinar breytingar er varða lögverndun bakara og ljósmyndara.
Samkeppnismál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Alþingi Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Fleiri fréttir Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Sjá meira