Fiskveiðisamningur Færeyja og Rússlands sagður smekkleysa Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar 3. desember 2022 17:05 Þórshöfn í Færeyjum Celal Gunes/Getty Images Evrópusambandið gagnrýnir nýjar fiskveiðisamning Færeyja og Rússlands. Þingmaður Dana á Evrópuþinginu segir samninginn smekklausan.
Stærsti samningur í sögu Færeyja Samningurinn sem Færeyingar gerðu við Rússa er langstærsti fiskveiðisamningur sem Færeyingar hafa gert við aðra þjóð. Hann felur í sér að færeysk skip geta veitt um 18 þúsund tonn af þorsk, ýsu og rækju í Barentshafi og Rússar geta veitt tæplega 100.000 tonn af kolmunna, síld og makríl í færeyskri lögsögu. Árni Skaale, sjávarútvegsráðherra Færeyja, segir að gildi samningsins jafngildi um 5 prósentum af þjóðarframleiðslu Færeyja, en Færeyingar hafa gert fiskveiðisamninga við Rússa í tæplega hálfa öld, eða allt frá árinu 1977. Segir samninginn smekkleysu Morten Helveg Petersen, þingmaður De Radikale á Evrópuþinginu, segir að samningurinn sé smekkleysa á sama tíma og aðrar þjóðir Evrópu leggi áherslu á að standa saman gegn grimmdarverkum Rússa í Úkraínu. Árni Skaale blæs á þessa gagnrýni. Hann bendir á að viðskiptabann Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi gildi ekki um matvæli, og að umfang samningsins fyrir Færeyinga jafngildi því að Danir myndu leggja niður innlendan landbúnað, og gott betur. Hann bendir sömuleiðis á að ríki Evrópu eigi enn í alls kyns viðskiptum við Rússa. Þá má nefna að Norðmenn endurnýjuðu einnig fyrir skemmstu fiskveiðisamning sinn við Rússa. Kosningar í Færeyjum á fimmtudag Þingkosningar fara fram í Færeyjum á fimmtudag í næstu viku, en þessi samningur breytir vart miklu um niðurstöður þeirra þar sem almenn samstaða ríkir á eyjunum, jafnt meðal almennings og stjórnmálaflokkanna um að ganga til samninga við Rússa.
Færeyjar Sjávarútvegur Rússland Evrópusambandið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Sjá meira