Lagerbäck og lærisveinninn grafa stríðsöxina Sindri Sverrisson skrifar 26. október 2020 13:01 Alexander Sörloth og Lars Lagerbäck skiptust á skoðunum. Getty
Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, og norski landsliðsframherjinn Alexander Sörloth virðast hafa náð sáttum. Lagerbäck, sem stýrt hefur norska landsliðinu síðustu ár, og Sörloth deildu harkalega í kjölfar þess að Noregur féll úr leik gegn Serbíu í EM-umspilinu fyrr í þessum mánuði. Sörloth hafði ýmislegt út á leikstíl norska liðsins og undirbúning fyrir umspilið að setja, og Lagerbäck spurði hvernig Sörloth dirfðist að tjá sig með þessum hætti – maður sem klúðrað hefði fyrir opnu marki í leik gegn Kýpur fyrir tveimur árum. Yfirlýsingar gengu svo á milli aðila í fjölmiðlum í síðustu viku. Í yfirlýsingu frá norska knattspyrnusambandinu var haft eftir Lagerbäck að Sörloth hefði sakað hann um vanhæfni, og að á 30 ára ferli Svíans sem þjálfara hefði leikmaður aldrei farið yfir strikið eins og Sörloth. Alexander Sörloth er framherji norska landsliðsins og RB Leipzig.Getty/Charles McQuillan Sörloth lýsti því yfir að hann hefði aldrei sagt þjálfara norska landsliðsins vanhæfa. Sagði ekki að þjálfararnir væru vanhæfir Lagerbäck og Sörloth, ásamt fyrirliða norska landsliðsins Stefan Johansen og aðstoðarþjálfaranum Per Joar Hansen, hafa nú sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu. Þar segir: „Alexander skilur nú að samskiptaleiðin var ekki rétt, hann sér eftir því, og við erum sammála um hvaða reglur eigi að gilda fyrir landsliðið. Í kjölfarið á Serbíuleiknum áttu sér stað heitar umræður. Það eiga að vera rúm þolmörk í keppnisumhverfi en í þetta sinn var hitinn of mikill og umræðurnar gengu of langt hjá báðum aðilum. Alexander og þjálfarateymið vilja taka fram að Alexander hefur ekki sagt að þjálfararnir séu vanhæfir, en Alexander viðurkennir að hann hafi tjáð sig þannig að þeir gætu tekið því þannig. Alexander, þjálfararnir og fyrirliðinn hafa nú rætt saman og eru einhuga um að þetta mál sé að baki, og ætla að einbeita sér að komandi landsleikjum.“ Noregur leikur þrjá landsleiki frá 11.-18. nóvember. Fyrsti leikurinn er vináttulandsleikur við Ísrael á heimavelli en liðið sækir svo Rúmeníu og Austurríki heim í Þjóðadeildinni.
Þjóðadeild UEFA EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir Segir Lagerbäck ekki fara með rétt mál Skilaboðin halda áfram að fljúga á milli Alexander Sörloth og Lars Lagerbäck eftir hávaðarifrildi þeirra í kjölfar þess að norska landsliðið í fótbolta féll út úr EM-umspilinu. 23. október 2020 07:30 Framherjinn sagði Lagerbäck vanhæfan: Aldrei upplifað þetta á þrjátíu ára ferli Lars Lagerbäck hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að greint var frá harkalegum deilum hans við Alexander Sörloth, framherja norska landsliðsins. 22. október 2020 12:01 Lagerbäck í hávaðarifrildi við eina af stjörnum Noregs Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, átti í háværum deilum við framherjann Alexander Sörloth fyrir framan allan norska landsliðshópinn eftir að EM-draumurinn hvarf. 21. október 2020 08:01 Haland hlóð í þrennu gegn Rúmenum Norðmenn, undir stjórn Lars Lagerback, hristu af sér vonbrigði fimmtudagsins og völtuðu yfir Rúmena í B-deild Þjóðadeildarinnar í dag. 11. október 2020 17:53 Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Dagskráin í dag: Valur og Breiðablik mætast í úrslitum, enska B-deildin og LUÍH Sport Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Fleiri fréttir Boehly fær að fjúka 2027 Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Sjá meira
Segir Lagerbäck ekki fara með rétt mál Skilaboðin halda áfram að fljúga á milli Alexander Sörloth og Lars Lagerbäck eftir hávaðarifrildi þeirra í kjölfar þess að norska landsliðið í fótbolta féll út úr EM-umspilinu. 23. október 2020 07:30
Framherjinn sagði Lagerbäck vanhæfan: Aldrei upplifað þetta á þrjátíu ára ferli Lars Lagerbäck hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að greint var frá harkalegum deilum hans við Alexander Sörloth, framherja norska landsliðsins. 22. október 2020 12:01
Lagerbäck í hávaðarifrildi við eina af stjörnum Noregs Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, átti í háværum deilum við framherjann Alexander Sörloth fyrir framan allan norska landsliðshópinn eftir að EM-draumurinn hvarf. 21. október 2020 08:01
Haland hlóð í þrennu gegn Rúmenum Norðmenn, undir stjórn Lars Lagerback, hristu af sér vonbrigði fimmtudagsins og völtuðu yfir Rúmena í B-deild Þjóðadeildarinnar í dag. 11. október 2020 17:53
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti