Erlent

Reynslulaus farþegi lenti flugvél

Smári Jökull Jónsson skrifar
Vélin var af gerðinni Cessna 208 líkt og vélin á þessari mynd.
Vélin var af gerðinni Cessna 208 líkt og vélin á þessari mynd. Vísir/Getty

Farþegi í flugvél neyddist til að taka við stjórn vélarinnar í háloftunum og lenda henni á flugvelli í Flórída eftir að flugmaðurinn varð rænulaus. Hann hafði enga flugreynslu en fékk leiðbeiningar við lendinguna frá flugturni.

CNN greinir frá atvikinu. Þar kemur fram að flugmaðurinn hafi orðið rænulaus og farþeginn hafði þá í samband við næsta flugturn í gegnum talstöðina. 

„Ég er í alvarlegum málum hérna. Flugmaðurinn minn er rænulaus og ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að fljúga þessari vél,“ sagði maðurinn en vélin var á leið frá Bahamas.

Flugumferðarstjórinn Robert Morgan var í pásu þegar hann var beðinn um að flýta sér aftur í flugturninn. Morgan er flugkennari og með rúmlega 1200 flugtíma á bakinu og auk þess reyndur flugkennari.

„Ég gekk inn í herbergið og þar var allt á fullu. Þeir segja við mig: Hey, flugmaðurinn er rænulaus. Farþegarnir eru að fljúga vélinni og þeir eru ekki með neina flugreynslu.“

Hann sagði farþegann hafa verið mjög rólegan.

„Hann sagði, ég veit ekki hvernig ég á að fljúga. Ég veit ekki hvernig ég á að stoppa ef ég kemst á flugbrautina.“

Morgan hafði aldrei flogið flugvél af sömu tegund og þeirri sem var í loftinu. Hann prentaði út mynd af stjórnborði slíkrar vélar og notaði myndina til að átta sig betur á aðstæðum farþegans.

Vissu ekki hvar vélin var

Hann kom þeim skilaboðum til flugmannsins að halda jafnvægi á vélinni og athuga hvort hann gæti reynt að lækka flugið rólega.

„Reyndu að fylgja ströndinni annaðhvort í norður eða suður. Við erum að reyna að staðsetja sig,“ sagði Morgan í talstöðina en flugmaðurinn hafði ekki hugmynd um hvar hann var staddur þar sem ekkert sást á skjánum í vélinni.

Þegar búið var að finna út hvar í loftinu vélin var tók Morgan þá ákvörðun að beina henni á stærsta flugvöllinn á svæðinu. Þá hefði flugmaðurinn stóran völl að miða á.

Morgan gefur flugmanninum tíu í einkunn fyrir lendinguna.

„Mig langaði að fara að gráta því ég var fullur af adrenalíni. Ég var mjög ánægður að þetta gekk upp og að enginn slasaðist.“

Þegar vélin var komin á jörðina áttu hann og nýjasti flugneminn hans hjartnæma stund þar sem sá síðarnefndi þakkaði honum fyrir aðstoðina og sagðist svo vilja drífa sig heim til ófrískrar eiginkonu sinnar.

„Í mínum augum er hann hetjan. Ég var bara að vinna vinnuna mína,“ sagði Morgan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×