„Ódauðlegt myndband“ vegna þess að kerfið var ekki tilbúið Kristinn Haukur Guðnason skrifar 2. júní 2023 10:27 Myndbandið hefur vakið upp margar spurningar um tilgang með flokkun sorps. Jón Þórir segir að verið sé að innleiða nýtt kerfi en það taki tíma. Skjáskot, Vísir/Vilhelm Myndband sem sýnir sorphirðumenn í Kópavogi tæma mismunandi flokkunartunnur í sama bíl hefur vakið nokkra furðu. Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins, segir flokkunarkerfið ekki að fullu komið af stað. „PR-lega séð hefði ábyggilega verið betra að losa á sitthvorum bílnum út af svona myndböndum, sem eru ódauðleg. En kerfið er ekki lagt af stað,“ segir Jón Þórir um myndbandið sem hefur verið í dreifingu á TikTok og birt var á vefmiðlinum hun.is í gær. Eftir að hafa séð myndbandið hafa margir velt því fyrir sér hvers vegna heimilunum er gert að flokka rusl sem sé síðan sett í saman bíl og blandast þar. Jón Þórir segir hins vegar að innleiðing kerfisins sé enn þá í gangi og fyrir næstu losun ættu þeir íbúar sem fengið hafa tunnurnar að fá aðskilda tæmingu. „Kerfið er ekki búið að innleiða og það er ekki búið að gefa út fyrir dagatal fyrir sérsöfnun. Sérsöfnun á bláum tunnum, fyrir pappír, pappa og plast, hefst ekki fyrr en eftir hálfan mánuð,“ segir hann. „Við fylgjum enn þá gamla kerfinu fyrsta hálfa mánuðinn. Það var því ein losun sem var á gamla mátann.“ Fólk fékk ílát en kerfið ekki tilbúið Íslenska gámafélagið sér um sorphirðu í þremur sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Það er Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ. Jón Þórir segir að í gær hafi verið byrjað að losa pappír, pappa og plast aðskilið í Garðabæ og Mosfellsbæ. Dreifing á ílátum hófst fyrir um tíu dögum en innleiðingin á öllu svæði félagsins mun taka átta vikur í heildina. Fyrir næstu losun verði kerfið komið á að hluta í Kópavogi og í öllum bænum eftir um sex vikur. Þá eiga allir íbúar Kópavogs að vera komnir með fjóra flokka sorps sem verða sóttir á aðskildum bílum og búin til verðmæti úr því. Umtalsverð verðmæti í flokkun Jón Þórir fullvissar fólk um að það sé mikill tilgangur með flokkun sorps. Umtalsverð verðmæti séu í því. „Bráðlega getum við hætt að urða ruslið í Álfsnesi. Við búumst við því að útflutningur á pappír, pappa og plasti geti aukist um þrjátíu prósent við þessa flokkun hjá okkur. Það eru nokkur hundruð skipagámar á ári,“ segir hann. Yfirlýsing frá Íslenska gámafélaginu Í myndbandi sem gengur á samfélagsmiðlum af sorphirðu Íslenska gámafélagsins í Kópavogi sést hvar sótt er í einn bíl pappír, pappi og plast. Réttu verklagi er fylgt við söfnunina. Í mörgum sveitarfélögum er unnið að aðgreiningu á pappír og plasti og á það við um Kópavog líka. Unnið er að innleiðingu þess kerfis og hluti af því er aðgreining í tunnur. Að auki fer svo fram flokkun hjá Íslenska gámafélaginu. Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins: „Við erum afar stolt af faglegu flokkunar- og endurvinnsluferli okkar. Ef rýnt er í myndbandið sem fór í umferð sést að ekki er verið að sækja almennan úrgang, heldur það efni sem áður fór í græntunnuna, sem víða þekkist.“ Gert er ráð fyrir að innleiðingu á nýju flokkunarkerfi í Kópavogi verði lokið innan átta vikna og verður þá sérsöfnun á úrgangsflokkunum fjórum sem undir eru, plastumbúðum, pappír og pappa, matarleifum og blönduðum úrgangi. Kópavogur Sorphirða Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Sjá meira
„PR-lega séð hefði ábyggilega verið betra að losa á sitthvorum bílnum út af svona myndböndum, sem eru ódauðleg. En kerfið er ekki lagt af stað,“ segir Jón Þórir um myndbandið sem hefur verið í dreifingu á TikTok og birt var á vefmiðlinum hun.is í gær. Eftir að hafa séð myndbandið hafa margir velt því fyrir sér hvers vegna heimilunum er gert að flokka rusl sem sé síðan sett í saman bíl og blandast þar. Jón Þórir segir hins vegar að innleiðing kerfisins sé enn þá í gangi og fyrir næstu losun ættu þeir íbúar sem fengið hafa tunnurnar að fá aðskilda tæmingu. „Kerfið er ekki búið að innleiða og það er ekki búið að gefa út fyrir dagatal fyrir sérsöfnun. Sérsöfnun á bláum tunnum, fyrir pappír, pappa og plast, hefst ekki fyrr en eftir hálfan mánuð,“ segir hann. „Við fylgjum enn þá gamla kerfinu fyrsta hálfa mánuðinn. Það var því ein losun sem var á gamla mátann.“ Fólk fékk ílát en kerfið ekki tilbúið Íslenska gámafélagið sér um sorphirðu í þremur sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Það er Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ. Jón Þórir segir að í gær hafi verið byrjað að losa pappír, pappa og plast aðskilið í Garðabæ og Mosfellsbæ. Dreifing á ílátum hófst fyrir um tíu dögum en innleiðingin á öllu svæði félagsins mun taka átta vikur í heildina. Fyrir næstu losun verði kerfið komið á að hluta í Kópavogi og í öllum bænum eftir um sex vikur. Þá eiga allir íbúar Kópavogs að vera komnir með fjóra flokka sorps sem verða sóttir á aðskildum bílum og búin til verðmæti úr því. Umtalsverð verðmæti í flokkun Jón Þórir fullvissar fólk um að það sé mikill tilgangur með flokkun sorps. Umtalsverð verðmæti séu í því. „Bráðlega getum við hætt að urða ruslið í Álfsnesi. Við búumst við því að útflutningur á pappír, pappa og plasti geti aukist um þrjátíu prósent við þessa flokkun hjá okkur. Það eru nokkur hundruð skipagámar á ári,“ segir hann. Yfirlýsing frá Íslenska gámafélaginu Í myndbandi sem gengur á samfélagsmiðlum af sorphirðu Íslenska gámafélagsins í Kópavogi sést hvar sótt er í einn bíl pappír, pappi og plast. Réttu verklagi er fylgt við söfnunina. Í mörgum sveitarfélögum er unnið að aðgreiningu á pappír og plasti og á það við um Kópavog líka. Unnið er að innleiðingu þess kerfis og hluti af því er aðgreining í tunnur. Að auki fer svo fram flokkun hjá Íslenska gámafélaginu. Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins: „Við erum afar stolt af faglegu flokkunar- og endurvinnsluferli okkar. Ef rýnt er í myndbandið sem fór í umferð sést að ekki er verið að sækja almennan úrgang, heldur það efni sem áður fór í græntunnuna, sem víða þekkist.“ Gert er ráð fyrir að innleiðingu á nýju flokkunarkerfi í Kópavogi verði lokið innan átta vikna og verður þá sérsöfnun á úrgangsflokkunum fjórum sem undir eru, plastumbúðum, pappír og pappa, matarleifum og blönduðum úrgangi.
Yfirlýsing frá Íslenska gámafélaginu Í myndbandi sem gengur á samfélagsmiðlum af sorphirðu Íslenska gámafélagsins í Kópavogi sést hvar sótt er í einn bíl pappír, pappi og plast. Réttu verklagi er fylgt við söfnunina. Í mörgum sveitarfélögum er unnið að aðgreiningu á pappír og plasti og á það við um Kópavog líka. Unnið er að innleiðingu þess kerfis og hluti af því er aðgreining í tunnur. Að auki fer svo fram flokkun hjá Íslenska gámafélaginu. Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins: „Við erum afar stolt af faglegu flokkunar- og endurvinnsluferli okkar. Ef rýnt er í myndbandið sem fór í umferð sést að ekki er verið að sækja almennan úrgang, heldur það efni sem áður fór í græntunnuna, sem víða þekkist.“ Gert er ráð fyrir að innleiðingu á nýju flokkunarkerfi í Kópavogi verði lokið innan átta vikna og verður þá sérsöfnun á úrgangsflokkunum fjórum sem undir eru, plastumbúðum, pappír og pappa, matarleifum og blönduðum úrgangi.
Kópavogur Sorphirða Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Sjá meira