Telur ósennilegt að Reykvíkingar muni finna mikinn mun Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. apríl 2021 20:00 Formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir boðaða lækkun hámarkshraða á götum í eigu borgarinnar mikla afturför sem lengja muni ferðatíma Reykvíkinga. Samgönguverkfræðingur telur hins vegar að áhrif á ferðatíma verði hverfandi.
Breytingarnar voru samþykktar í umhverfis- og skipulagsráði í gær. Stærsta breytingin verður á stofnbrautum eins og Suðurlandsbraut þar sem hámarkshraði fer úr 60 í 40 kílómetra á klukkustund. Á götum eins og Háaleitisbraut, Grensásvegi, Bústaðavegi, Snorrabraut og Suðurgötu lækkar hann úr 50 í 40 kílómetra á klukkustund. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB, hagsmunasamtaka bifreiðaeigenda, segir að vissulega verði umferðaröryggi bætt með því að lækka svo hámarkshraða niður í þrjátíu í öllum íbúðahverfum. „En að taka meginstofnæðar niður í 40 eða 50 kílómetra hraða, það teljum við vera mikið skref aftur á bak og hindrun í veg borgaranna.“ Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.vÍSIR/ARNAR Þetta muni lengja ferðatíma Reykvíkinga og stuðla að umferðartöfum. „Ef þú til dæmis þarft að fara frá vinnu og sækja þjónustu læknis eða eitthvað annað á vinnutíma, þá þýðir það bara mun lengri ferðatími sem þýðir meiri fjarvera frá vinnu, sem þýðir meiri kostnaður, sem þýðir minni samverustundir hjá fjölskyldum og svo framvegis,“ segir Runólfur. Á götum eins og Bústaðavegi, Háaleitisbraut, Grensásvegi, Snorrabraut og Suðurgötu lækkar hámarkshraði úr 50 í 40 kílómetra á klukkustund. Meðalhraðinn sjaldnast hámarkshraðinn Fram kemur í skýrslu borgarinnar að breytingin muni hafa í för með sér 12 prósent lengingu á ferðatíma. Tafir við gatnamót eru þar ekki teknar með í reikninginn. Bílferð sem nú tekur fimmtán mínútur myndi þannig lengjast um tæpar tvær mínútur. „Þetta er ekki veruleg lenging,“ segir Lilja Guðríður Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur hjá VSB verkfræðistofu. „Ætti ekki að vera það í flestum tilfellum því að meðalhraðinn á bílunum í borginni er sjaldnast 50, 60 kílómetra hraði eins og staðan er í dag.“ Aðrir þættir en hámarkshraði vegi talsvert þyngra. Lilja Guðríður Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur.Vísir/Sigurjón „Ef ég tek sem dæmi Bústaðaveginn. Frá Reykjanesbraut og upp að Kringlumýrarbraut, þetta er tveir og hálfur kílómetri. Á fimmtíu kílómetra hraða þar í dag ertu svona þrjár mínútur að keyra í frjálsu flæði en það gerist aldrei því það eru sirka sex eða sjö ljós á leiðinni sem þú þarft að stoppa við. Þannig að rauntíminn hjá þér í dag ertu kannski nær sjö mínútum. Þannig að þó svo að hraðinn lækki held ég að fólk finni ekki neinn svakalegan mun hjá sér,“ segir Lilja. Veltir ekki hversdagsleikanum „Það er yfirleitt pakkað gatnakerfið í borgum á háannatíma. Ég veit ekki hvort það sé til sú borg í heiminum þar sem þú getur keyrt á hámarkshraða á annatíma. Þannig að það er magnið af bílunum, ljósastýringarnar, gangandi vegfarendur og hjól og allt það sem hefur úrslitaáhrifin.“ Telurðu líklegt að þetta verði breyting sem fólk muni finna fyrir? „Það er alveg mögulegt á einhverjum leiðum. Ég tók ekki þátt í þessu þannig að ég veit ekki hvaða greiningar liggja þarna á bak við. En ég held að í stóru myndinni verði það ekki neitt sem veltir hversdagsleikanum hjá fólki.“
Umferðaröryggi Reykjavík Borgarstjórn Skipulag Samgöngur Tengdar fréttir Gætu slegið nokkrar flugur í einu höggi með lægri hámarkshraða Áform borgaryfirvalda um að lækka hámarkshraða til að útrýma alvarlegum umferðarslysum gæti einnig dregið umtalsvert úr loftmengun. Hagsmunasamtök bíleigenda eru ósátt við áformin en samgönguverkfræðingur segir annað en hámarkshraða ráða meiru um ferðatíma bíla í borginni. 15. apríl 2021 14:00 Forgangur Strætó á gatnamótum eina svarið við mögulegum áhrifum Verið er að greina hvort boðuð lækkun hámarkshraða á götum í Reykjavík hafi neikvæð áhrif á ferðatíma og rekstrarkostnað Strætó. Eina mótvægisaðgerðin við mögulegum áhrifum væri þó forgangur strætisvagna á umferðarljósum, að sögn framkvæmdastjóra. 15. apríl 2021 12:46 Eyþór um lækkun hámarkshraða: „Umferðin getur hreinlega leitað frekar inn í íbúðabyggð“ Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hugnast ekki áform meirihlutans um að hámarkshraði á mörgum af helstu samgönguæðum borgarinnar verði lækkaður. Hann telur að lækkun hámarkshraða muni tefja fyrir almenningssamgöngum auk þess sem það geti skapað hættu á aukinni umferð um íbúðagötur. 14. apríl 2021 21:11 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Erlent Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Sjá meira
Gætu slegið nokkrar flugur í einu höggi með lægri hámarkshraða Áform borgaryfirvalda um að lækka hámarkshraða til að útrýma alvarlegum umferðarslysum gæti einnig dregið umtalsvert úr loftmengun. Hagsmunasamtök bíleigenda eru ósátt við áformin en samgönguverkfræðingur segir annað en hámarkshraða ráða meiru um ferðatíma bíla í borginni. 15. apríl 2021 14:00
Forgangur Strætó á gatnamótum eina svarið við mögulegum áhrifum Verið er að greina hvort boðuð lækkun hámarkshraða á götum í Reykjavík hafi neikvæð áhrif á ferðatíma og rekstrarkostnað Strætó. Eina mótvægisaðgerðin við mögulegum áhrifum væri þó forgangur strætisvagna á umferðarljósum, að sögn framkvæmdastjóra. 15. apríl 2021 12:46
Eyþór um lækkun hámarkshraða: „Umferðin getur hreinlega leitað frekar inn í íbúðabyggð“ Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hugnast ekki áform meirihlutans um að hámarkshraði á mörgum af helstu samgönguæðum borgarinnar verði lækkaður. Hann telur að lækkun hámarkshraða muni tefja fyrir almenningssamgöngum auk þess sem það geti skapað hættu á aukinni umferð um íbúðagötur. 14. apríl 2021 21:11