Forseti Brasilíu segir Johnson hafa falast eftir „neyðarsamningi“ um ákveðna matvöru Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. september 2021 12:38 Bolsonaro og Johnson funduðu í New York í vikunni, þar sem síðarnefndi ræddi mikilvægi bólusetninga gegn Covid-19 við kollega sinn. Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, segir forsætisráðherra Bretlands hafa biðlað til hans um „neyðarsamkomulag“ vegna skorts á ákveðinni matvöru. Stjórnvöld í Bretlandi eru sögð hafa neitað því að ummælin eigi við rök að styðjast.
Skortur á vörubifreiðastjórum og verkamönnum í uppskerustörf, til viðbótar við skort á koldíoxíð til að slá út dýr fyrir slátrun og framleiða ís til að halda vörum ferskum, hafa orðið til þess að óttast er að vöruskortur myndist í aðdraganda jóla. Olíurisinn BP gaf það út á dögunum að skortur gæti orðið á eldsneyti á einhverjum bensínstöðvum og þá sagði framkvæmdastjóri stórvörumarkaðskeðjunnar Iceland að ákveðnar vörur yrðu uppurnar eftir daga, fremur en vikur. Stjórnvöld hafa hins vegar hvatt fólk til að sýna stillingu og sleppa því að hamstra, þar sem nóg væri til af matvöru og öðrum aðföngum. Samkvæmt Guardian kom Bolsonaro inn á hina meintu beiðni frá Boris Johnson í vikulegu vefvarpi en þar sagði hann og Johnson hefðu fundað á þingi Sameinuðu þjóðanna í New York í vikunni, hefði síðarnefndi farið þess á leit að flytja inn ákveðna matvöru frá Brasilíu. Einhverjir hafa gert úr því skóna að mögulega hafi Johnson rætt við Bolsonaro um kalkún fyrir jólin en Brasilía er þriðja stærsta framleiðsluland alifuglakjöts í heiminum. Samkvæmt vefsíðunni Poultry World fluttu Evrópuríkin inn 12,5 milljón tonn af fuglakjöti frá Brasilíu í fyrra.
Bretland Brasilía Matvælaframleiðsla Jól Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Fleiri fréttir Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sjá meira