Fjórfalda flotann og hlakka til að láta Hopp „svitna aðeins“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 4. júlí 2022 11:30 Adam Karl Helgason er framkvæmdastjóri ZOLO. Aðsend Rafhlaupahjólaleigan ZOLO færir nú út kvíarnar og fer heildarfjöldi hjóla hjá fyrirtækinu úr 250 í þúsund. Þá hefur fyrirtækið stækkað umsvifasvæði sitt, sem nær nú í Kópavog, Breiðholt, Árbæ og Grafarvog, en áður hafi félagið haldið sig miðsvæðis í Reykjavík. Framkvæmdastjórinn segist hlakka til að láta keppinautana „svitna aðeins.“ „
Já, við erum í hálfgerðum skölunarfasa og erum að færa út kvíarnar, loksins að fara að spila þetta almennilega,“ segir Adam Karl Helgason, framkvæmdastjóri ZOLO, í samtali við fréttastofu. Adam segir að fjórföldun hjólaflotans geri fyrirtækinu kleift að lækka verðið úr 34 krónum á mínútu í 30 krónur, en startgjaldið verði áfram hundrað krónur. „Þegar við erum komin upp í þessa stærð þá sjáum við möguleikann á því að lækka okkur aðeins, enda viljum við halda verðinu viðráðanlegu.“ Stefnt er að því að langstærstur hluti flotans verði á höfuðborgarsvæðinu, eða um 900 stykki. Þó bætast 50 hjól við á Selfossi, en 50 hjól voru þar fyrir. „Við erum bara að svara þörfinni, miðað við notkunartölur töldum við alveg vera pláss fyrir fleiri hjól og við erum stolt af þessu skrefi,“ segir Adam. Samstarf við Strætó á döfinni Auk fjölgunar í flotanum og lægra verðs boðar ZOLO samstarf við Strætó, rétt eins og helsti keppinauturinn á markaðnum, Hopp, hefur gert. „Við höfum verið að leita hvort til annars,“ segir Adam, spurður hver hafi átt frumkvæðið að fyrirhuguðu samstarfi. „Við erum búin að vera í samtölum og samvinnu með Strætó, og þetta er eitthvað sem við stefnum á að ráðast í með haustinu. Þetta verður þá líklega tilbúið í byrjun 2023, en þá verður hægt að gera þetta allt inni á sama appinu,“ segir Adam. Hugmyndin er þá sú að hægt verði að bóka hjól og fylgjast með strætóferðum inni í sama smáforritinu, auk þess sem hægt verði að fylgjast með staðsetningu strætisvagna og hlaupahjóla í rauntíma, á þar til gerðum skjáum á völdum biðstöðvum Strætó. „Síðan höfum við verið í sambandi við þau, við viljum auðvitað gera appið eins aðgengilegt og þægilegt og hægt er. Við höfum átt í mjög góðu samstarfi og Strætó er mjög viljugt til að bæta hlaupahjólunum inn í sinn rekstur og finna einhverja góða lendingu.“ Hoppað út í djúpu laugina Adam segir spennandi tíma fram undan hjá ZOLO, með auknum umsvifum. „Við erum bara svolítið að móta okkur upp á nýtt, komin með mun betri tækni og upplýsingar til að gera þetta enn fullkomnara. Við viljum geta svarað þörfum allra, vita hvar er best að vera á hverjum tíma og hvernig er best að nýta hjólin.“ Að sögn Adams er Hopp, sem er helsti samkeppnisaðilinn, með um þúsund hjól á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir spennandi að ráðast í aukna samkeppni. „Við byrjuðum á sama tíma, það er einhver mánuður á milli fyrirtækjanna árið 2019. Við höfum verið að taka þetta í hægari kantinum, enda bara fjölskyldufyrirtæki,“ segir Adam. Nú sé hins vegar komið að því að stækka við sig. „Það er bara gaman að láta þau svitna aðeins,“ segir Adam að lokum.
Rafhlaupahjól Samgöngur Strætó Reykjavík Kópavogur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Sjá meira