Þrír lagðir inn á spítala

Ljósmynd/Landspítalinn/Þorkell

23 sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19 en þrír þeirra hafa lokið einangrun. Fjórir eru á gjörgæslu, þrír þeirra í öndunarvél.

Í gær voru þrír lagðir inn á spítala en þeir voru í hóp þeirra 18 sem komu til mats og meðferðar á Covid-göngudeild spítalans.

Í símaeftirliti Covid-göngudeildar eru 1.769 einstaklingar, þar af 516 börn. 97 eru gulir og tveir rauðir.

Samtals eru 50 starfsmenn frá vinnu vegna einangrunar (24) og sóttkvíar (26) og 97 eru í vinnusóttkví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert