Bandaríski rapparinn Lil Wayne fundaði með forseta Bandaríkjanna, Donald Trump í gær. Rapparinn greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni í gær. Efni fundarins var staða og tækifæri dökkra einstaklinga í Bandaríkjunum.
Just had a great meeting with @realdonaldtrump @potus besides what he’s done so far with criminal reform, the platinum plan is going to give the community real ownership. He listened to what we had to say today and assured he will and can get it done. 🤙🏾 pic.twitter.com/Q9c5k1yMWf
— Lil Wayne WEEZY F (@LilTunechi) October 29, 2020
Í færslunni segir Lil Wayne að fundurinn hafi gengið vel, en þar ræddu þeir meðal annars stefnumál sem hjálpa eiga dökkum Bandaríkjamönnum. Meðal þess sem var á dagskrá fundarins var svokallað Platínum-plan (e. platinum plan).
Umrætt plan er eitt af kosningaloforðum forsetans, en það gengur í einföldu máli út á að veita öllum dökkum einstaklingum möguleikann á því að lifa „ameríska drauminn“. Þannig eru vonir bundnar við að hægt verði að skapa allt að þrjár milljónir starfa fyrir framangreindan hóp.
Skammt er nú til forsetakosninga í Bandaríkjunum, en þær fara fram á þriðjudag í næstu viku. Trump og keppinautur hans, Joe Biden, berjast nú um atkvæðin en dökkir Bandaríkjamenn kunna að ráða miklu um úrslit kosninganna.