„Taktlaust og ósmekklegt“ Atli Ísleifsson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 16. apríl 2024 11:40 Inga Sæland er fyrsti flutningsmaður vantrauststillögunnar. Hún vill þingkosningar í september. Vísir/Arnar „Okkur þykir það einstaklega slæm skilaboð að það að axla ábyrgð sé að komast upp með það að fara ekki eftir neinum reglum sem um störf þessara aðila gilda eins og þau hafa sýnt og sannað. Við teljum það ekki vera að axla ábyrgð á ganga á milli ráðuneyta í stað þess að stíga til hliðar og viðurkenna að það að maður hafi gerst brotlegur í starfi.“
Þetta segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, um þá vantrauststillögu þingmanna flokks hennar og Pírata sem lögð hefur verið fram á þingi. Í tillögunni er vantraust lýst yfir á ríkisstjórnina í heild sinni, að hér verði þingrof og boðað verði til þingkosninga í september. Hún segir það afskaplega taktlaust og ósmekklegt að ráðherrann [Bjarni Benediktsson] sem hafi flæmst úr fjármálaráðuneytinu og gert sig að utanríkisráðherra sé nú orðinn forsætisráðherra. „Okkur þykir líka taktlaust að matvælaráðherrann [Svandís Svavarsdóttir] sem var líka brotlegur við stjórnsýslulögin og jafnvel stjórnarskrá lýðveldisins skuli vera búin að færast upp um stiga líka og sé orðinn innviðaráðherra,“ segir Inga. Vonast til að verði tekin fyrir á morgun Inga segir að flutningsmenn tillögunnar hafi talað við alla þingmenn stjórnarandstöðunnar varðandi það að vera meðflutningsmenn. „Við töluðum við alla. Þau ákváðu að vera ekki á vantrausttillögunni sjálfri. Mér skilst að flestir – ég held bara allir – muni greiða atkvæði með vantraustinu vegna þess að við höfum öll gefið það út, stjórnarandstaðan eins og hún leggur sig, að við treystum ekki þessari ríkisstjórn.“ Inga segist vonast til að tillagan verði tekin fyrir á morgun, enda eigi að taka svona tillögur fyrir eins fljótt og kostur sé. Vonandi verði hægt að taka málið fyrir áður en umræður hefjast um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hverjar telur þú líkurnar á að þetta verði samþykkt? „Ég tel þær afskaplega litlar. Þeir eru með 38 þingmenn og þeir eru ekki að fara að lýsa vantrausti á sjálfa sig. Ég gat ekki betur séð en að þau hafi verið að faðmast voðalega mikið eftir þetta áfall að Katrín ákvað að yfirgefa skútuna, fyrst allra. Þau eru svo sem ekkert að líta á hvert annað einhverjum hlýleikaaugum en það breytir þó ekki þeirri staðreynd að þau reyna að halda út eins og kostur sé þar til einhver önnur bomba springur hjá þeim.“ Inga segir tillagan nú sé fyrst og fremst táknræn aðgerð. „Á bak við þessa aðgerð eru líka á milli 40 og 50 þúsund kjósendur og einstaklingar sem hafa skrifað undir undirskriftarlista og mótmælt því að Bjarni Benediktsson skuli vera orðinn yfir öllum valdrastrúktúr framkvæmdavaldsins í landinu.“
Alþingi Flokkur fólksins Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fara fram á farbann Innlent Fleiri fréttir Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Sjá meira