„Skortur á upplýsingum“

Halldóra Mogensen þingmaður Pírata hefur margar spurningar til heilbrigðisyfirvalda í …
Halldóra Mogensen þingmaður Pírata hefur margar spurningar til heilbrigðisyfirvalda í ljósi úrskurðarins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Mig langar að vita hvers vegna þau voru svona óviðbúin því að einhver myndi leggja fram kæru. Það er eins og sóttvarnalæknir hafi ekki áttað sig almennilega á lögunum og það finnst mér alvarlegt við svona frelsissviptingu,“ segir Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.

Fór hún fram á að velferðarnefnd kæmi saman um leið og mál nokkurra vistmanna í sóttvarnahúsi voru tekin fyrir í Héraðsdómi. Fundar velferðarnefnd um úrskurðinn og viðbrögð við honum klukkan tíu í dag.

Leitin að minnisblaði sem leiddi að ákvörðuninni 

Á fundinum hyggst Halldóra inna heilbrigðisyfirvöld eftir svörum um ferlið í kringum reglugerðarsetninguna:

„Mér finnst þörf á því að vita hvað lá að baki ákvörðuninni og kalla eftir upplýsingum í kringum ferli ákvörðunartökunnar. Það er skortur á upplýsingum,“ segir hún í samtali við mbl.is og hyggst hún þá óska eftir minnisblaði sóttvarnalæknis.

Minnisblað sóttvarnalæknis sem leiddi að reglugerð um skyldudvöl í sóttvarnahúsi hefur ekki verið birt. Mbl.is óskaði eftir minnisblaðinu í samtali við yfirlögfræðing ráðuneytisins, Sigurð Kára Árnason, en ekki gekk það eftir.

Spyr hvers vegna fólk fékk ekki að fara út undir bert loft

Þá finnst Halldóru mikilvægt að farið verði yfir meðalhófið:

„Það er ýmislegt hægt að gera, meira að segja ökklaband væri vægara úrræði en skyldudvöl í farsóttarhúsi,“ segir hún.

Einnig hyggst hún spyrja hvers vegna vistmönnum hafi ekki verið leyft að fara út undir bert loft.

„Meira að segja fólk í gæsluvarðhaldi fær að fá sér frískt loft. Maður hefði talið að það yrði að leyfa fólki að fara út í einhvern tíma á dag,“ segir Halldóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert