Innlent

Um tvö þúsund hælis­leit­endur nú í bú­setu­úr­ræðum á vegum VMST

Atli Ísleifsson skrifar
Samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun hafa að jafnaði um hundrað einstaklingar á viku sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá því í janúar.
Samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun hafa að jafnaði um hundrað einstaklingar á viku sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá því í janúar. Vísir/Vilhelm

Tæplega tvö þúsund umsækjendur um alþjóðlega vernd dvelja nú í búsetuúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar. Aldrei hafa jafnmargir sótt um hæli á Íslandi en um þessar mundir en frá áramótum hafa að jafnaði um hundrað manns sótt um hæli hér á landi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Þar segir að þegar Vinnumálastofnunin hafi tekið við þjónustunni við hælisleitendur um mitt síðasta ár hafi sjö hundruð verið búsettir í húsnæði ætluðu umsækjendur um alþjóðlega vernd.

„Það sem af er ári eru umsækjendur orðnir fleiri en á sama tíma í fyrra eða um 2.000 talsins. Að jafnaði hafa um 100 einstaklingar á viku sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá því í janúar sl.

Tölfræðina má nálgast á vef Stjórnarráðsins en þar sést meðal annars að frá áramótum hafa ríflega tvisvar sinnum fleiri sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi en allt árið 2021. Flest fólkið kemur frá Venesúela og Úkraínu en fjöldi ríkisfanga er 49. Börn eru 20% hópsins.

Þau sem sæta ofsóknum í heimalandi sínu eða eiga þar á hættu til að mynda pyndingar eða ómannúðlega meðferð eiga rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi sem flóttafólk. Þau sem koma hingað til lands og óska eftir viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamenn teljast vera umsækjendur um alþjóðlega vernd. Áður var talað um hælisleitendur í þessu samhengi eða um fólk í leit að hæli, það er griðastað,“ segir í tilkynningunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×