Einvígi gamla og nýja tímans þegar Brady og Mahomes mætast í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2020 10:31 Tom Brady og Patrick Mahomes eftir síðasta leik þeirra en þá var Brady leikmaður New England Patriots. Getty/Matthew J. Lee Það eru margir spenntir fyrir einvígi Tom Brady og Patrick Mahomes í NFL-deildinni í dag en gengi liða þeirra hefur engu að síður verið ólíkt undanfarnar vikur.
Það eru margir spenntir fyrir einvígi Tom Brady og Patrick Mahomes í NFL-deildinni í dag en gengi liða þeirra hefur engu að síður verið ólíkt undanfarnar vikur. Stórleikur dagsins í NFL-deildinni er leikur Tampa Bay Buccaneers og Kansas City Chiefs í Flórída en leikstjórnendur liðanna eru þeir sem hafa leitt hafa lið til sigurs í Super Bowl á síðustu tveimur tímabilum. Patrick Mahomes og félagar í Kansas City Chiefs hafa verið á góðu skriði og hafa unnið níu af fyrstu tíu leikjum sínum á tímabilinu. Höfðingjarnir töpuðu óvænt á móti Las Vegas Raiders snemma í október en hafa svarað því með fimm sigrum í röð. Sá síðasti var einmitt á móti umræddu Raiders liði. Eftir 38-10 sigur á Green Bay Packers og 45-20 sigur á Las Vegas Raiders í síðasta mánuði þá leit Tampa Bay Buccaneers liðið vel út en síðustu vikur hafa breytt áliti margra á liðinu.Tom Brady er vissulega mesti sigurvegarinn í sögu NFL-deildarinnar en undanfarnar vikur hafa verið erfiðar fyrir manninn sem neitar að leggja skóna á hilluna. Tampa Bay Buccaneers hefur tapað tveimur af síðustu þremur leikjum og þar á undan rétt marði liðið sigur á New York Giants. Það sem hefur einkennt Brady og félaga er að þeir spila illa í stóru leikjunum, leikjunum á móti bestu liðunum eða í kvöldleikjum stóru sjónvarpsstöðvanna. Það ætti bara að þýða eitt í dag. Brady hefur líka verið í miklum vandræðum með að kasta boltanum fram völlinn í þessum undanförnum leikjum og er lítur meira og meira eins og maður á fimmtugsaldri með hverju tapinu. Prófin verða ekki stærri en í dag enda þarf Brady að keyra sóknarleikinn áfram ef Tampa Bay Buccaneers ætlar að halda í við Patrick Mahomes og félaga. Útsending frá leik Tampa Bay Buccaneers og Kansas City Chiefs hefst klukkan 21.20 á Stöð 2 Sport 2 en klukkan 17.55 verður leikur New England Patriots og Arizona Cardinals sýndur á Stöð 2 Sport.
NFL Mest lesið Rashford líka skilinn eftir heima Enski boltinn Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Fótbolti Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Fótbolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Fram - ÍA | Skora Skagamenn hjá bestu vörninni? Í beinni: Breiðablik - Stjarnan | Blikar geta minnkað forskot Víkinga Í beinni: HK - Valur | Valsmenn reyna að stöðva sigurgöngu HK Pochettino farinn frá Chelsea Býst við að Sveindís Jane sé klár fyrir leikina mikilvægu Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Ísland vann þrjú gull og fjögur silfur á NM í frjálsum Fyrrum besta knattspyrnukona heims framlengir við Barcelona Mo Salah ætlar að vinna titla með Liverpool á næstu leiktíð Valsmenn hafa unnið alla deildarleiki sína við HK frá hruni Ráðherrar reiðir út í leikmann í frönsku deildinni Kane aðeins fjórum stigum frá mögnuðu meti Rondey Robinson Snjór til vandræða í Ítalíuhjólreiðunum Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Rashford líka skilinn eftir heima Tveir leikir á Akureyri og bikarmeistararnir lentu á móti Fylki Sagður vera búinn að henda Henderson út úr enska landsliðinu Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Toni Kroos hættir eftir EM í sumar Meiðsli settu strik í reikninginn og biðin eftir fyrsta sigrinum lengist Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Wembanyama fylgir í fótspor goðsagna Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Dagskráin í dag: Stórleikur á Kópavogsvelli Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Völdu Albert í lið ársins Sjá meira