Tónlist

Ariana Grande í Hvíta húsinu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ariana Grande situr hér í skrifstofu forsetans í Hvíta húsinu.
Ariana Grande situr hér í skrifstofu forsetans í Hvíta húsinu. Skjáskot/YouTube

Ariana Grande frumsýndi í gær tónlistarmyndband við nýjasta lag sitt, Positions. Myndbandið var frumsýnt stuttu eftir að kappræðum Donald Trumps og Joe Biden forsetaframbjóðenda lauk en í myndbandinu sjáum við Grande í Hvíta húsinu og virðist hún þar gegna stöðu forseta Bandaríkjanna.

Aðeins er rúm vika þar til forsetakosningar í Bandaríkjunum fara fram og er því varla tilviljun að Grande birti myndbandið á slíkum tíma. Í myndbandinu er hún ekki aðeins „fyrsti kvenforseti Bandaríkjanna“ heldur er hún umkringd kvenkyns ráðgjöfum.

Myndbandið hefur vakið mikla lukku og á þeim sautján klukkustundum frá því það var birt hafa rúmlega fjórtán milljón manns horft á það á YouTube og rúmlega tíu milljónir á Instagram-síðu hennar.

Hægt er að horfa á myndbandið hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×