Lánaður úr Leikni í 1. deildina

Patryk Hryniewicki.
Patryk Hryniewicki. Ljósmynd/Leiknir

KV hefur fengið Leiknismanninn Patryk Hryniewicki á láni frá Bestudeildarliðinu Leikni úr  Reykjavík.

Patryk lék einnig á láni með KV síðasta sumar og hjálpaði liðinu þá að fara upp úr 2. deild í 1. deildina. Nú er hann kominn aftur í Vesturbæinn og á væntanlega að hjálpa liðinu að halda sæti sínu í deildinni.

KV tapaði 3:1 fyrir Fylki í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar. Liðið mætir HK annað kvöld og ætti Patryk að vera klár í þann leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert