Hanna getur ekki verið með sínum nánustu yfir hátíðirnar en allir fá góða jólagjöf Stefán Árni Pálsson skrifar 4. desember 2020 16:30 Mynd/Cat Gundry Beck Íslensk-sænska tónlistarkonan Hanna Mia Brekkan sendir frá sér jólaplötu í dag sem ber nafnið Winter Songs. Þar flytur hún lög eftir konur í folk-tónlistarbúningi.
Ásamt Hönnu Miu, leikur enski tónlistarmaðurinn Tom Hannay á hljóðfæri á plötunni. Þá er platan hljóðblönduð af hinum færeyska Sakaris Emil Joensen, sem hún kynntist þegar þau voru bæði í námi við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Persónuleg gjöf Hanna Mia er ein þeirra fjölmörgu sem ekki geta verið með ættingjum sínum um jólin vegna heimsfaraldursins, en fjölskylda hennar er búsett í Svíþjóð. Hún ákvað því að setja saman plötuna sem einskonar jólagjöf til sinna nánustu. Lokalag plötunnar, Nu Tändas Tusen Juleljus, er til að mynda sænskt jólalag sem er eftirlætis jólalag ömmu Hönnu Miu. „Amma mín, Marianne Jonstam, er 92 ára og býr í Enköping í Svíþjóð. Ég hringdi í hana og spurði hana hvað væri uppáhalds lagið hennar,“ segir Hanna. Hanna Mia tengist laginu einnig í gegnum systur sína, Emily Reise, en hún er einnig búsett á Íslandi og þær syngja saman á upptökunni. Þær hafa sungið lagið saman síðan þær voru litlar stelpur og því við hæfi að þær leiði saman hesta sína hér. „Þetta er lag sem við sungum alltaf í Svíþjóð, síðasta dag fyrir jólafrí.“ Starfar með Airbnb Hanna Mia hefur gefið út nokkrar plötur en þetta er fyrsta jólaplatan. Líkt og aðrir tónlistarmenn hefur hún þurft að finna nýjar leiðir til að nálgast listina en hún hefur síðustu mánuði meðal annars staðið fyrir reglulegum streymistónleikum í tengslum við Airbnb, auk þess að halda smærri tónleika fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Hún á listina ekki langt að sækja en hún er dóttir Helgu Brekkan, kvikmyndagerðarkonu og Mats Jonstam sem er leikstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá Sænska ríkissjónvarpinu. Foreldrar hennar eru skilin og því heldur hún jólin á milli tveggja, og stundum þriggja landa. Hún segir jólahaldið fjölbreytilegt milli ára. Alþjóðleg æskujól Hún lýsir sínum eftirlætis jólaminningum frá sameiginlegu húsi stórfjölskyldunnar í Svíþjóð þar sem amma hennar hefur haldið jól síðustu 92 ár. „Hún kemur alltaf og fær vonandi að halda jólin aftur þetta árið,“ segir hún. „Þegar ég var krakki voru alltaf bestu jólin þar. Þá kom fjölskyldan saman og við héldum klassísk sænsk jól. Allir að borða saman jólaskinkuna, kjötbollur og litlar pylsur,“ segir Hanna og hlær. Hún segir að íslensku jólin hafi líka verið yndisleg, á heimili íslensku afa og ömmu. „Á Íslandi um jólin var alltaf mikil tónlist hjá afa og ömmu,“ segir Hanna en íslensku afi og amma voru læknahjónin Ásmundur og Ólöf Helga Brekkan.
Jól Tónlist Svíþjóð Mest lesið Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Lífið Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Lífið Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Lífið Gallstasi á meðgöngu: „Ég grátbað um að ég yrði sett af stað“ Áskorun „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búin að senda þessa línu“ Makamál Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Lífið „Það er einmanalegt að missa móður“ Lífið Krakkatían: Celebs, sumar og forseti Íslands Lífið Vandamálaráðuneytið únefndi hinn fimmtán ára Viðar til sigurs Lífið Hvetur fólk til að nota sólarvörn eftir krabbameinsgreiningu Lífið Fleiri fréttir „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Vandamálaráðuneytið únefndi hinn fimmtán ára Viðar til sigurs Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Krakkatían: Celebs, sumar og forseti Íslands Sveitarstjóri og sauðfjárbóndi fóru á kostum Hvetur fólk til að nota sólarvörn eftir krabbameinsgreiningu Metmæting á tískusýningu útskriftarnema LHÍ Mynd ársins af palestínskum flóttamanni Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu Karl konungur snýr aftur úr veikindaleyfi Fréttatía vikunnar: Þyrlur, forsetaframbjóðendur og skemmdarverk „Það er einmanalegt að missa móður“ Trúlofuðust á gjörgæslunni eftir bílslys á Íslandi Ellý snýr aftur vegna fjölda áskorana Ætlað að auka umræðu og sýnileika leiðsöguhunda Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Fágæt og falleg eign við Flókagötu Aron passaði varla inn í bílinn Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Grínari selur íbúð í Vesturbænum Sophia Bush kemur út úr skápnum „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Sjá meira