Una ráðin til forsetaembættisins

Una Sighvatsdóttir er nýr sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands.
Una Sighvatsdóttir er nýr sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Una Sighvatsdóttir hefur verið ráðin í stöðu sérfræðings hjá embætti forseta Íslands. Í starfinu felst undirbúningur og framkvæmd opinberra viðburða á vegum embættisins, aðstoð við ræðuskrif og framsetningu efnis á samfélagsmiðlum auk umsjónar með skráningu, vistun og skilum skjala. RÚV greinir frá þessu.

Alls sóttu 188 manns um starfið, þar á meðal fjöldi fjölmiðlamanna og lögfræðinga, líkt og Viðskiptablaðið greindi frá fyrr í mánuðinum.

Una hefur síðustu tvö ár starfað sem út­send­ur friðargæsluliði á veg­um ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins hjá skrif­stofu Nató í Georgíu en áður var hún uppslýsingafulltrúi Nató í Kabúl. Hún hefur einnig unnið sem blaðamaður á Morgunblaðinu, mbl.is og á fréttastofu Stöðvar 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert