fbpx
Föstudagur 10.janúar 2025
Fréttir

Tásumyndir frá Tene geta boðið hættunni heim

Ritstjórn DV
Laugardaginn 17. ágúst 2024 16:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það líður að hausti með sinni rútínu og því líklegt að flestir séu búnir með lengra sumarfrí. En hvort sem farið er í styttra eða lengra frí hvenær sem er ársins er gott að passa upp á öryggi heimilisins meðan heimilismenn eru fjarri. 

Á vefsíðu Örugg verkfræðistofa birtir Böðvar Tómasson 12 góð ráð til að draga úr líkum á því að óprúttnir aðilar athafni sig á heimilinu meðan heimilismenn njóta sín í fríi

Munið að læsa

Gangið úr skugga um að allar hurðir séu læstar og allir gluggar lokaðir, þar á meðal bílskúrshurð, skúr og kjallaragluggar. Ekki freistast til að fela aukalykla undir mottu eða steini; innbrotsþjófar vita hvar þeir eiga að leita og lykill veitir þeim greiðan aðgang.

Fáið einhvern til að líta inn

Fáið nákominn einstakling, hvort sem það er ættingi, vinur eða nágranni, til að líta við stöku sinnum sem umsjónarmaður heimilisins. Ekki aðeins fá þá plönturnar vatn, heldur er hægt að bregðast við óvæntum uppákomum á borð við rafmagnsleysi eða leka. Svo er ekki verra að kveikja eða slökkva ljós og hnika gluggatjöldunum til svo að einhver virðist heima.

Nágrannavarsla

Upplagt er fyrir nágranna að hjálpast að og setja upp nágrannavörslu sem er passlega stór, t.d. í götunni. Hana þarf að setja upp í nokkrum skrefum og nauðsynlegt er að kanna þær kröfur sem gerðar eru í sveitarfélaginu og hjá lögreglu. Kynna þarf öllum fyrirkomulag og halda fundi til að sameiginlegur skilningur sé á vörslunni. Að lokum ætti að setja upp nágrannavörsluskilti og viðeigandi límmiða.

Auglýsið ekki fjarveruna á samfélagsmiðlum

Ísland er lítið land og það er auðvelt fyrir innbrotsþjófa að safna upplýsingum á samfélagsmiðlum um fjarveru fólks frá heimili sínu. Tásumyndir frá Tene geta boðið hættunni heim.

Látið færa bílinn

Ef bílastæði er fyrir hendi og bíll er skilinn eftir heima er um að gera að hafa hreyfingu á notkun stæðisins. Ef fleiri en einn bíll eru til taks er gott að láta þá skiptast á að vera í stæðinu. Látið bílinn í það minnsta ekki standa á nákvæmlega sama stað dögum saman. Ef bílinn er ekki heima má biðja nágranna að leggja í stæðið.

Látið póstinn ekki hrúgast upp

Ef enginn lítur inn dögum saman er hætt við að sjáanleg pósthrúga myndist. Þá er snöggtum hættara við því að einhver sjái sér leik á borði og reyni að brjótast inn.

Stillið ljósin með hjálp forrits

Fáið Google Home, Alexa eða sambærilegt forrit í lið með ykkur. Ef kveikt er á ljósum á morgnana en slökkt á kvöldin gæti virst utan frá séð sem heimilislífið gangi sinn vanagang. Útiljósin ættu þó að kvikna fyrir nóttina til að óboðnir aðilar hafi ekki skjól myrkurs til að athafna sig.

Dragið fyrir

Gott er að draga fyrir glugga, en skilja einhverja glugga eftir þannig að það sjáist inn. Ef dregið er fyrir hvern glugga lítur út fyrir að enginn sé heima.

Færið verðmæti úr augsýn

Það gildir jafnt á ferðinni erlendis sem við frágang heimilisins að ekki skal auglýsa verðmæti. Gangið frá tölvum, símum, peningum og hvers kyns hrifsanlegum verðmætum þannig að þau freisti ekki þeirra sem kunna að skyggnast inn um gluggann. Læst hirsla er afar ákjósanleg.

Kveikið á hljóðgjöfum

Hljóð getur virkað sem þjófafæla ekki síður en ljós. Hægt er að láta snjallforrit kveikja á sjónvarpinu um kvöld og jafnvel um miðjan dag. Tilvonandi innbrotsdólgar eru þá líklegri til að hætta við ætlunarverk sitt.

Kveikið á öryggiskerfinu

Gleymið ekki að setja öryggiskerfi heimilisins á vörð, ef það er fyrir hendi. Svo þarf líka að segja skipuðum eftirlitsmanni heimilisins kóðann svo að hann ræsi ekki öryggisfyrirtækið þegar hann lítur inn. Myndavélar og merkingar um vöktun hafa talsverðan fælingarmátt.

Tilkynnið lögreglu

Nauðsynlegt er að tilkynna lögreglu um grunsamlegar mannaferðir og athæfi. Ef fólk er að þvælast í görðum, skyggnast inn um glugga eða hringja dyrabjöllum hjá ókunnugum án þess að hafa sannfærandi ástæðu á reiðum höndum er mikilvægt að láta laganna verði vita af slíku. Hringið í Neyðarlínuna 1-1-2.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sigrún kveður Stöð 2 eftir sextán ár – „Þessi ákvörðun var erfið“

Sigrún kveður Stöð 2 eftir sextán ár – „Þessi ákvörðun var erfið“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þrýst á Sigurð Inga að axla ábyrgð eftir slakan árangur Framsóknarflokksins

Þrýst á Sigurð Inga að axla ábyrgð eftir slakan árangur Framsóknarflokksins
Fréttir
Í gær

Frakkar vara Trump við vegna Grænlands – Tekið verði hart á Bandaríkjamönnum

Frakkar vara Trump við vegna Grænlands – Tekið verði hart á Bandaríkjamönnum
Fréttir
Í gær

Gáleysi ökumanns vörubifreiðar og ófullnægjandi aðstæður á Ásvöllum urðu Ibrahim að bana

Gáleysi ökumanns vörubifreiðar og ófullnægjandi aðstæður á Ásvöllum urðu Ibrahim að bana