Á skotskónum í Belgíu

Kolbeinn Þórðarson hefur skorað tvö mörk í belgísku B-deildinni á …
Kolbeinn Þórðarson hefur skorað tvö mörk í belgísku B-deildinni á tímabilinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kolbeinn Þórðarson skoraði fyrsta mark Lommel þegar liðið gerði jafntefli gegn Lierse á útivelli í belgísku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Leiknum lauk með 2:2-jafntefli en Kolbeinn kom Lommel yfir strax á 6. mínútu. Kolbeinn var í  byrjunarliði Lommel en var skipt af velli á 77. mínútu.

Þetta var hans annað mark í belgísku B-deildinni á tímabilinu en hann hefur komið við sögu í níu leikjum með Lommel á leiktíðinni.

Lommel er með 15 stig í sjötta sæti deildarinnar en átta lið leika í belgísku B-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert