„Varð bara ekki að veruleika“ Aron Guðmundsson skrifar 4. júní 2023 10:00 Snorri Steinn hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta. Í nýjasta þætti Handkastsins ræddi hann hugmyndir um að hann og Dagur myndu taka við landsliðinu í sameiningu. Vísir/Samsett mynd Snorri Steinn Guðjónsson, nýráðinn landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segir að sú hugmynd, að hann og Dagur Sigurðsson myndu taka við landsliðinu, hafi aldrei farið á alvarlegt stig. Þá hafi hann aðeins gert nauðsynlega hluti þegar að umræðan um ráðningarferli HSÍ stóð sem hæst.
Snorri Steinn var gestur í nýjasta þætti Handkastsins þar sem hann ræddi meðal annars hitamál tengt landsliðsþjálfaraleit HSÍ. Það var um miðjan aprílmánuð sem Dagur Sigurðsson, einn besti handboltaþjálfari Íslands og núverandi landsliðsþjálfari Japan, steig fram í viðtali við Vísi og greindi frá óformlegum fundi sem hann átti við forkólfa HSÍ. Sagði Dagur fundinn hafa minnt sig á leikþátt og að hann hafi ekki verið reiðubúinn að starfa með umræddum forkólfum eftir hann. Hugmyndir höfðu verið viðraðar um að Dagur og Snorri Steinn myndu saman taka við landsliðinu. „Við hefðum alveg verið tilbúnir í að koma að þessu saman,“ sagði Snorri Steinn, nýráðinn landsliðsþjálfari Íslands í Handkastinu. „Hvernig það hefði verið, ég tel óþarfa að vera fara eitthvað út í það, þetta varð bara ekki að veruleika.“ Samtöl við HSÍ um að hann og Dagur myndu taka við íslenska landsliðinu saman hafi aldrei farið á alvarlegt stig. „Ég og Dagur ræddum heldur ekkert okkar á milli hvernig við myndum haga hlutunum, bara alls ekki. Það var heldur ekkert skilyrði af minni hálfu, þegar að ég sagðist hafa áhuga á landsliðsþjálfarastarfinu, að það yrði með Degi. Það var ekki svoleiðis.“ Sleppti því að fara í búðina Það tók HSÍ eitt hundrað daga að ganga frá ráðningu á eftirmanni Guðmundar Guðmundssonar í starf landsliðsþjálfara Íslands og á ýmsu gekk í ferlinu. Snorri Steinn segist ekki gera sér grein fyrir því hversu mikil, ef einhver áhrif, það hafði að vera miðpunktur allrar umræðunnar í tengslum við íslenska landsliðið og landsliðsþjálfarastarfið yfir lengri tíma. „Þetta var langur tími og maður gerir sér einhvern veginn ekki grein fyrir því hvaða áhrif þetta hafði. Kannski hafði þetta áhrif á leik Valsliðsins og auðvitað var þetta svolítið mikið.“ Snorri Steinn Guðjónsson og Guðmundur B. Ólafsson skrifa undir samning þess efnis að Snorri stýri íslenska landsliðinu næstu þrjú ár.VÍSIR/VILHELM Hann segist sjálfur hafa verið orðinn þreyttur á öllum þeim fréttum sem birtust í tengslum við ráðningarferlið. „Ég get alveg viðurkennt það. Það var eitthvað um mann sjálfan í blöðunum á hverjum einasta degi en þetta truflaði mig samt ekkert það mikið. Ég sleppti því að fara í búðina á þessum tíma og gerði bara þá hluti sem ég þurfti að gera.“ Snorri er einn af þeim sem er ekki mikið á samfélagsmiðlum. „Þar af leiðandi fer líka fullt fram hjá mér í umræðunni. Maður getur aðeins valið hvað maður tekur inn. Ég fer inn á Vísi, MBL og les fréttir um eitthvað annað en íþróttir en þetta fór aldrei á það stig að ég væri að missa einhvern svakalegan svefn yfir þessu.“ Viðtalið við Snorra Stein í Handkastinu í fullri lengd má finna hér fyrir neðan:
Handkastið Landslið karla í handbolta HSÍ Tengdar fréttir Snorri Steinn jafngamall Þorbirni Jens og einu ári eldri en Gummi Gumm Snorri Steinn Guðjónsson er tekinn við sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta en hann er þó ekki í hópi þeirra sem hafa yngstir tekið við landsliði Íslands. 2. júní 2023 10:31 „Mjög stoltur að geta kallað mig landsliðsþjálfara“ Snorri Steinn Guðjónsson segist stoltur yfir því að hafa verið ráðinn þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta. 1. júní 2023 15:31 „Hann veit manna best að hann þarf að gera eitthvað í sínum málum“ Snorri Steinn Guðjónsson, nýráðinn landsliðsþjálfari í handknattleik, var gestur í nýjasta þætti Handkastsins þar sem hann ræddi landsliðið við Arnar Daða Arnarsson stjórnanda hlaðvarpsins. 3. júní 2023 12:00 Mest lesið Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Körfubolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Sjá meira
Snorri Steinn jafngamall Þorbirni Jens og einu ári eldri en Gummi Gumm Snorri Steinn Guðjónsson er tekinn við sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta en hann er þó ekki í hópi þeirra sem hafa yngstir tekið við landsliði Íslands. 2. júní 2023 10:31
„Mjög stoltur að geta kallað mig landsliðsþjálfara“ Snorri Steinn Guðjónsson segist stoltur yfir því að hafa verið ráðinn þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta. 1. júní 2023 15:31
„Hann veit manna best að hann þarf að gera eitthvað í sínum málum“ Snorri Steinn Guðjónsson, nýráðinn landsliðsþjálfari í handknattleik, var gestur í nýjasta þætti Handkastsins þar sem hann ræddi landsliðið við Arnar Daða Arnarsson stjórnanda hlaðvarpsins. 3. júní 2023 12:00