Skothríð gegn mótmælendum í Mjanmar Samúel Karl Ólason skrifar 3. mars 2021 16:11 Frá mótmælum í Yangon í dag. EPA/NYEIN CHAN NAING Öryggissveitir Mjanmar hófu í dag skothríð á fólk sem hafði komið saman á götum borga og bæja landsins í dag til að mótmæla valdaráni hersins. Minnst átján eru sagðir liggja í valnum og tugir eru særðir.
Vitni sem Reuters fréttaveitan ræddi við segja mótmælendur ekki hafa fengið viðvaranir og einn þeirra sagði að mótmæli sem hann sótti hafi breyst í blóðbað. Í borginni Yangon voru minnst átta skotnir þegar skothríðin hófst og sambærilega sögu er að segja frá bænum Monywa. Reuters hefur eftir mannréttindasamtökum að minnst átján séu dánir en í frétt BBC segir að minnst tíu hafi fallið. Þar er tekið fram að fregnir af fleiri dauðsföllum hafi borist en þær hafi ekki verið staðfestar. Hörð viðbrögð herstjórnarinnar við mótmælunum hafa verið gagnrýnd víða um heiminn. Sú gagnrýni hefur þó ekki skilað ætluðum árangri þar sem viðbrögð herstjórnarinnar hafa orðið sífellt harðari. Mótmæli hófust í Mjanmar eftir að her landsins framdi þar valdarán í byrjun febrúar. Herinn heldur því fram að mikið svindl hafi farið fram í kosningunum í fyrra, þar sem flokkur hennar, NLD, vann stóran sigur. Herinn hefur þó ekki fært sönnur fyrir því. Samkvæmt frétt Reuters hafa minnst 40 mótmælendur dáið frá því mótmælin hófust. AP fréttaveitan birti í dag myndband sem sýnir lögregluþjóna handtaka blaðamann á þeirra vegum. Hann og fimm aðrir blaðamenn hafa verið ákærðir samkvæmt lögum sem herstjórnin breytti og gerði strangari í síðasta mánuði og gætu þeir mögulega verið dæmdir í allt að þriggja ára fangelsi. #Myanmar : gruesome video of police violence in #Yangon today.Policemen stop an ambulance and force the medics outside. Once they sit by the side of the road the police start savagely beating the defenseless medics. #WhatsHappeninglnMyanmar pic.twitter.com/PneXYb6AWC— Thomas van Linge (@ThomasVLinge) March 3, 2021
Mjanmar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sjá meira