Felldu styttu af hönnuði heimavistarskólanna Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 7. júní 2021 10:10 Mótmælendur felldu styttu af Ryerson, sem jafnan er talinn hönnuður heimavistarskóla fyrir börn af frumbyggjaættum í Kanada, í gær. Getty/Steve Russell Stytta af Egerton Ryerson, sem jafnan er talinn einn hönnuða heimavistarskóla fyrir börn af frumbyggjaættum í Kanada, var felld af mótmælendum í Toronto um helgina. Mótmælendur komu saman til þess að lýsa yfir óánægju vegna fjöldagrafar sem fannst við heimavistarskóla á dögunum.
Styttuna af Ryerson, sem stóð við Ryerson háskólann í Tortonto í Kanada, var þegar búið að skemma fyrr í vikunni. Þá hafði verið krotað á styttuna og rauðri málningu hellt yfir hana. Fyrrnefndir heimavistarskólar voru reknir í Kanada í hartnær hundrað ár, frá áttunda áratug 19. aldar fram á áttunda áratug 20. aldar. Börn af frumbyggjaættum voru skikkuð til að sækja skólana og var markmiðið að afmá menningu barnanna og aðlaga þau að menningu innflytjenda frá Evrópu. Þau voru þvinguð til að taka upp kristna siði og var meinað að tala eigin tungumál. Eftirlit með skólunum, sem voru reknir af ríkinu og trúarstofnunum, var lítið sem ekkert og voru börnin beitt ofbeldi og misnotuð kynferðislega. Skólarnir hafa verið mikið til umræðu undanfarna viku eftir að fjöldagröf 215 barna fannst við Kamloops Indian heimavistarskólann á dögunum. Munu ekki endurreisa styttuna Gagnrýni á Ryerson hefur aukist gífurlega undanfarna viku og hefur meðal annars verið kallað eftir því að styttan af honum verði fjarlægð af skólasvæðinu og að Ryerson háskólinn verði endurnefndur. Eins og áður segir var búið að mála á styttuna og var meðal annars búið að skrifa á hana: „grafið þau upp“ og „gefið okkur landið aftur“. Kayla Sutherland steig upp á pallinn sem styttan af Ryerson stóð á og flutti ræðu.Getty/Steve Russell Í yfirlýsingu frá háskólanum segir að meira en þúsund hafi tekið þátt í friðsamlegum mótmælum við skólann síðdegis í gær áður en einn mótmælenda kom með trukk á svæðið sem var notaður í að toga styttuna niður af stallinum. Mohamed Lachemi, rektor skólans, sagði að styttan verði ekki endurreist. Þá hefur skólinn skipað nefnd sem mun vinna að tillögu um það hvort eigi að endurnefna skólann og hvernig skólinn geti brugðist við arfleifðinni sem Ryerson skildi eftir sig. Nefndin á að ljúka vinnu sinni í september.
Kanada Kynþáttafordómar Styttur og útilistaverk Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Krefst þess að Páfagarður biðjist afsökunar á ofbeldi í heimavistarskólum Forsætisráðherra Kanada segir það mikil vonbrigði að kaþólska kirkjan hafi ekki beðist formlega afsökunar á ofbeldi gegn börnum af frumbyggjaættum, sem fór fram í skólum í Kanada um áraraðir. Hann kallar eftir því að kirkjan taki ábyrgð á ofbeldinu eftir áralanga þöggun. 4. júní 2021 22:43 Talið að þúsundir barna hafi dáið í skammarlegum skólum í Kanada Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir fund líka 215 barna við gamlan heimavistarskóla fyrir fólk af frumbyggjaættum, ekki vera einsdæmi. Hann hefur heitið því að fólk sem var látið sækja þessa skóla muni fá aðstoð frá ríkinu. 31. maí 2021 22:46 Fjöldagröf kanadískra barna fannst við skóla Fjöldagröf 215 kanadískra barna hefur fundist í Bresku Kólumbíu í Kanada. Er þar um að ræða börn af frumbyggjaættum sem sóttu heimavistarskóla. Breska ríkisútvarpið greinir frá. 29. maí 2021 07:40 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent „Hann hættir bara ekki” Fréttir Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Innlent Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Innlent Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Innlent Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Erlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Sjá meira
Krefst þess að Páfagarður biðjist afsökunar á ofbeldi í heimavistarskólum Forsætisráðherra Kanada segir það mikil vonbrigði að kaþólska kirkjan hafi ekki beðist formlega afsökunar á ofbeldi gegn börnum af frumbyggjaættum, sem fór fram í skólum í Kanada um áraraðir. Hann kallar eftir því að kirkjan taki ábyrgð á ofbeldinu eftir áralanga þöggun. 4. júní 2021 22:43
Talið að þúsundir barna hafi dáið í skammarlegum skólum í Kanada Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir fund líka 215 barna við gamlan heimavistarskóla fyrir fólk af frumbyggjaættum, ekki vera einsdæmi. Hann hefur heitið því að fólk sem var látið sækja þessa skóla muni fá aðstoð frá ríkinu. 31. maí 2021 22:46
Fjöldagröf kanadískra barna fannst við skóla Fjöldagröf 215 kanadískra barna hefur fundist í Bresku Kólumbíu í Kanada. Er þar um að ræða börn af frumbyggjaættum sem sóttu heimavistarskóla. Breska ríkisútvarpið greinir frá. 29. maí 2021 07:40