Þrír kljást um að verða næsti formaður Kristilegra demókrata Atli Ísleifsson skrifar 15. janúar 2021 11:27 Norbert Röttgen, Armin Laschet og Friedrich Merz vilja allir leiða Kristilega demókrata (CDU) í Þýskalandi. EPA/EFE/FILIP SINGER / POOL Landsfundur Kristilegra demókrata (CDU) í Þýskalandi, flokks Angelu Merkel kanslara, fer fram á netinu um helgina þar sem 1.001 landsfundarfulltrúi mun velja nýjan formann flokksins. Vinni Kristilegir demókratar sigur í þingkosningunum næsta haust kann svo að fara að nýr formaður CDU verði næsti kanslari landsins. Þrír karlar sækjast nú eftir að leiða flokkinn.
Merkel lýsti því yfir árið 2018 ári að hún myndi láta af embætti kanslara eftir kosningarnar 2021 eftir að hafa gengt embættinu samfellt frá 2005. Árið 2018 lét Merkel af formennsku í flokknum og var þá Annegret Kramp-Karrenbauer, núverandi varnarmálaráðherra sem Merkel studdi til formennsku, kjörin nýr formaður. Síðasta vor tilkynnti Kramp-Karrenbauer hins vegar að hún hugðist láta af formennsku í flokknum á næsta landsfundi, þeim sem fram fer um helgina, og að hún myndi ekki sækjast eftir að verða kanslaraefni flokksins í næstu kosningum. Þrír karlar Það eru þrír karlar sem sækjast nú eftir að taka við formennsku í flokknum – fyrrverandi þingflokksformaður CDU, Friedrich Merz, forsætisráðherra Norðurrín-Vestfalíu, Armin Laschet, og loks formaður utanríkismálanefndar þingsins, Norbert Röttgen. Deutsche Welle segir frá því að margir hafi bent á að frambjóðendurnir þrír eigi margt sameiginlegt: fjölskyldumenn, kaþólskir og frá Norðurrín-Vestfalíu, fjölmennasta sambandsríki Þýskalands. Allir líti þeir á sig sem miðjumenn í pólitík. Þeir Merz, Laschet og Röttgen hafa allir heitið því að flýta stafrænni þróun í landinu og þrýsta á frekari aðgerðir til að berjast gegn loftslagsbreytingum. Þetta skuli gert á sama tíma og öflugu efnahagslífi skuli við haldið. Eitthvað sem skilur þá að Þó er einnig bent á að það sé þó sitthvað sem skilji frambjóðendurna að. Þannig lýsir Laschet sjálfum sér sem miklum baráttumanni fyrir félagslegu réttlæti og réttarríkinu. Röttgen hefur talað mikið fyrir að Þýskaland taki á sig aukna ábyrgð á alþjóðasviðinu, bæði í Evrópu og víðar. Þá benda stuðningsmenn Friedrich Merz, sem hefur sterk tengsl við atvinnulífið, að hann sé líklegur til að ná kjósendum aftur frá hægriöfgaflokknum Valkosti fyrir Þýskaland (AfD).
Þýskaland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Fleiri fréttir Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Sjá meira