Allir staðráðnir í að klára þetta almennilega fyrir Hamrén og Frey Sindri Sverrisson skrifar 18. nóvember 2020 16:30 Erik Hamrén og Freyr Alexandersson tóku við landsliðinu haustið 2018 og hafa því stýrt því í rúmlega tvö ár. Síðasti leikur þeirra saman með liðið er í kvöld. vísir/vilhelm „
Ég held að flestir hafi verið að vona að þeir myndu halda áfram með þetta,“ segir Kári Árnason um þjálfarana Erik Hamrén og Frey Alexandersson fyrir kveðjuleikinn í kvöld. Hamrén tilkynnti á laugardaginn að hann myndi hætta sem þjálfari íslenska landsliðsins. Lokaleikur þeirra Freys saman með liðið verður gegn Englandi á Wembley í kvöld, og það gæti sömuleiðis orðið síðasti landsleikur Kára sem verður með fyrirliðabandið. „Fótboltinn er eins og hann er og svona gerist. Við erum allir á þeim vagni að klára þetta almennilega fyrir þá [Hamrén og Frey], og skila vonandi sigri og þremur stigum í hús fyrir þá,“ segir Kári í viðtali við Henry Birgi Gunnarsson. Kári sagði á fréttamannafundi í gær að hann teldi gagnrýni á störf Hamréns og Freys hafa verið ómaklega. Leikmenn væru að minnsta kosti ánægðir með þeirra störf: „Já, við erum það. Auðvitað viljum við komast á EM, einföldu leiðina í gegnum riðilinn. En ef þú sérð hvernig hann spilast, og hvað okkur vantaði mörg stig til að komast á EM, við hefðum þurft 24-25 stig sem hefur aldrei tekist hjá íslenska landsliðinu, þá er þetta mjög erfitt og ekkert má fara úrskeiðis,“ segir Kári. Vissum að við værum með Tyrki í vasanum Hann kveðst alltaf hafa verið sannfærður um að Ísland myndi fá fleiri stig en Tyrkland úr innbyrðis leikjum liðanna í undankeppni EM, sem gekk eftir, en Tyrkir náðu í fjögur stig gegn heimsmeisturum Frakka og komust á EM. „Í öllum þessum riðlum sem við höfum spilað þá er eitthvað sem kemur manni á óvart. Það var Albanía á útivelli núna, Finnland á útivelli þar áður, en svo dettur þetta stundum manni í vil líka. Finnland náði jafntefli við Króatíu í undankeppni HM en núna fór þetta öfugt og Tyrkland náði jafntefli og sigri gegn Frökkum. Við vissum að við værum með Tyrki í vasanum og að ef þetta snerist um innbyrðis úrslit gegn þeim myndum við fara áfram. En svo er líka mikið af meiðslum, þetta er erfitt og við töpum á síðustu sekúndunum á móti Frakklandi með klaufalegu víti. Það var margt mjög gott í þessu,“ segir Kári, sem eins og fyrr segir er ánægður með störf Hamréns og Freys: „Þetta er náttúrulega leikur skoðana og það hafa allir rétt á sinni skoðun. Ég fæ ekki borgað fyrir að koma með mínar skoðanir, en ég veit samt nokkurn veginn hvað ég er að tala um.“ Leikur Íslands og Englands hefst klukkan 19.45 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Upphitun hefst klukkan 19.00. Klippa: Kári Árna um kveðjustund Hamréns og Freys
Þjóðadeild UEFA EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir Gáfu Guðna Bergs hugmyndir um hver ætti að vera næsti landsliðsþjálfari Guðni Bergsson, formaður KSÍ, liggur undir feldi næstu vikurnar en hann þarf nú að finna nýjan þjálfara á karlalandsliðið. Gott væri að byrja á því að skoða þennan lista. 18. nóvember 2020 09:30 Kári: Þetta er búið að vera erfitt Kári Árnason gæti leikið sinn síðasta landsleik í kvöld er Ísland mætir Englandi á Wembley. Hann segir að miklar tilfinningar hafi verið í mögulega hans síðustu landsliðsferð en hann útilokar þó ekkert. 18. nóvember 2020 07:01 Ísland mun eiga stað i hjarta Hamrén sem tók ákvörðunina um að hætta fyrir þónokkru síðan Erik Hamrén, sem stýrir sínum síðasta leik með íslenska landsliðið annað kvöld, mun bera góðar tilfinningar til Íslands og þakkar starfsfólkinu og leikmönnunum fyrir samvinnuna. 17. nóvember 2020 22:30 Leika með sorgarbönd á morgun til minningar um föður Hamréns Faðir landsliðsþjálfarans Eriks Hamrén lést á sunnudagskvöldið, sama kvöld og Ísland mætti Danmörku á Parken í Þjóðadeildinni. 17. nóvember 2020 15:38 Kári: Þið fréttamenn eigið að grátbiðja þá um að halda áfram Kári Árnason talaði skýrt og skorinort á blaðamannafundi Íslands í dag þegar hann var spurður út í framtíð gullkynslóðarinnar. 17. nóvember 2020 11:00 Kári ánægður með Hamrén og segir gagnrýnina ósanngjarna Kári Árnason hrósaði Erik Hamrén á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Englandi í Þjóðadeildinni. 17. nóvember 2020 10:58 Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Þambar kakó og rjóma eftir magnað afrek: „Upp og niður eins og lífið“ Sport Þorleifur horfði á Íslandsmet sitt falla: „Kom á óvart“ Sport Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Fótbolti Baunað á Brady: „Þín verður ávallt minnst sem tíkar Eli Manning“ Sport Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Enski boltinn Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Fleiri fréttir Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Bæjarar skoði að ráða ten Hag Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Sverrir Ingi lagði upp sigumarkið sem galopnaði toppbaráttuna Samherjar Alberts náðu í stig í Mílanó Uppgjör og viðtöl: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Hilmir Rafn kominn á blað í Noregi Sjá meira
Gáfu Guðna Bergs hugmyndir um hver ætti að vera næsti landsliðsþjálfari Guðni Bergsson, formaður KSÍ, liggur undir feldi næstu vikurnar en hann þarf nú að finna nýjan þjálfara á karlalandsliðið. Gott væri að byrja á því að skoða þennan lista. 18. nóvember 2020 09:30
Kári: Þetta er búið að vera erfitt Kári Árnason gæti leikið sinn síðasta landsleik í kvöld er Ísland mætir Englandi á Wembley. Hann segir að miklar tilfinningar hafi verið í mögulega hans síðustu landsliðsferð en hann útilokar þó ekkert. 18. nóvember 2020 07:01
Ísland mun eiga stað i hjarta Hamrén sem tók ákvörðunina um að hætta fyrir þónokkru síðan Erik Hamrén, sem stýrir sínum síðasta leik með íslenska landsliðið annað kvöld, mun bera góðar tilfinningar til Íslands og þakkar starfsfólkinu og leikmönnunum fyrir samvinnuna. 17. nóvember 2020 22:30
Leika með sorgarbönd á morgun til minningar um föður Hamréns Faðir landsliðsþjálfarans Eriks Hamrén lést á sunnudagskvöldið, sama kvöld og Ísland mætti Danmörku á Parken í Þjóðadeildinni. 17. nóvember 2020 15:38
Kári: Þið fréttamenn eigið að grátbiðja þá um að halda áfram Kári Árnason talaði skýrt og skorinort á blaðamannafundi Íslands í dag þegar hann var spurður út í framtíð gullkynslóðarinnar. 17. nóvember 2020 11:00
Kári ánægður með Hamrén og segir gagnrýnina ósanngjarna Kári Árnason hrósaði Erik Hamrén á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Englandi í Þjóðadeildinni. 17. nóvember 2020 10:58