Myndband sýnir ráðgjafa grínast með hina meintu jólaveislu skömmu eftir að hún á að hafa verið haldin Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 7. desember 2021 23:30 Allegra Stratton er í aðalhlutverki í myndbandinu en hún gegndi starfi talskonu Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands um skeið. David Cliff/NurPhoto via Getty Images) Myndband sem breska sjónvarpsstöðin ITV birti í kvöld sýnir háttsetta ráðgjafa Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, grínast með meinta jólaveislu fjórum dögum eftir að hún á að hafa verið haldin.
Breskir fjölmiðlar hafa að undanförnu haldið því fram að jólaveisla hafi verið í Downing-stræti 10 fyrir um 40-50 manns fyrir tæplega ári síðan, þann 18. desember 2020. Þá voru í gildi strangar sóttvarnareglur í London þar sem bannað var að halda veislur, svo hefta mætti útbreiðslu Covid-19. Sérstaklega var tekið fram í ráðleggingum stjórnvalda að jólaveislur væru ekki í boði. Johnson ekki sakaður um að hafa verið í veislunni Johnson sjálfur er ekki sakaður um að hafa verið í veislunni, en hann hefur engu að síður verið harðlega gagnrýndur fyrir hina meintu veislu, sem ráðuneyti hans þvertekur reyndar fyrir að hafi verið haldin, þvert á heimildir breskra fjölmiðla Búast má við að gagnrýni á Johnson muni aukast til muna eftir að ITV birti umrætt myndband. Myndbandið er tekið upp þann 22. desember 2020, aðeins fjórum dögum eftir að hin meinta veisla á að hafa verið haldin. Er það tekið upp þegar ráðgjafar Johnson hjálpa til við að undirbúa Aleggra Stratton, þáverandi talsmann Johnson, undir spurninga frá blaðamönnum. Grínast og hlæja yfir vangaveltum um hvað þau eigi að segja Í myndbandinu má heyra Ed Oldfield, háttsettan ráðgjafa Johnson, undirbúa Stratton undir spurningar um fregnir af samfélagsmiðlum um að jólaveisla hafi verið haldin í Downing-stræti tíu, nærri ári áður en fregnir af veislunnni brutust út. Spyr hann Stratton hvort hann kannist við fregnir af veislunni. „Ég fór heim,“ segir Stratton hlæjandi áður en hún stillir sig af til þess að svara almennilega. Spyr hún þá samstarfsfélaga sína hvert svarið við spurningunni sé. Oldfield spyr þá hvort að Johnson myndi líða það að svona veisla hafi verið haldin. „Þetta var ekki veisla, það var boðið upp á vín og osta,“ heyrist annar ráðgjafi svara. „Er vín og ostar ekki í lagi? Þetta var viðskiptafundur,“ segir Stratton og sjá má ráðgjafana hlæja að svarinu. Stratton horfir þá í myndavélinu og segir hlæjandi að það sé verið að taka æfinguna upp. „Þessi meinta veisla var viðskiptafundur og viðstaddir virtu ekki fjarlægðartakmörk,“ heyrist hún enn fremur segja hlæjandi. jálfur hefur Johnson sagt að hann sé fullviss um að öllum reglum hafi verið fylgt á meðan forsætisráðuneytið hefur sagt að engin veisla hafi verið haldin. 'I am satisfied myself that the guidelines were followed at all times'@BorisJohnson responds to new claims in The Times about an alleged Covid-rule-breaking party in Downing Street last Christmashttps://t.co/yyZ1W7FdLW pic.twitter.com/nH2bPAzKvZ— ITV News Politics (@ITVNewsPolitics) December 7, 2021
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bretland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Sjá meira