N1 Rafmagn biðst velvirðingar og endurgreiðir viðskiptavinum Eiður Þór Árnason skrifar 20. janúar 2022 18:20 Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1. N1 N1 Rafmagn hefur ákveðið að selja alla raforku á sama verðtaxta til heimila frá og með 1. janúar 2022, hvort sem viðskiptavinir hafi skráð sig sjálfir í viðskipti eða komið í gegnum þrautavaraleið stjórnvalda.
Jafnframt verður viðskiptavinum fyrirtækisins endurgreiddur mismunur á uppgefnum taxta og þrautavarataxta frá 1. nóvember síðastliðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Stjórnendur N1 Rafmagns hafa verið gagnrýndir fyrir að rukka fólk sem kemur í viðskipti í gegnum áðurnefnda þrautavaraleið mun hærri taxta en fyrirtækið hefur auglýst og boðið öðrum viðskiptavinum. „Aldrei var ætlunin að blekkja neytendur á nokkurn hátt og þykir okkur leitt ef neytendur túlka það svo. Vegna skyndilegrar innkomu þrautavaraviðskipta til fyrirtækisins, þurfti N1 Rafmagn að kaupa orku handa þessum hópi á skammtímamarkaði þar sem verð eru afar breytileg og hafa hækkað ört á síðustu misserum,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, í yfirlýsingu. Hann sagði fyrr í dag að það væri óraunhæft að bjóða öllum viðskiptavinum sama raforkuverð. „Því skal haldið til haga að N1 Rafmagn hefur á engum tímapunkti fengið mismun á uppgefnum taxta samkvæmt verðskrá og þrautavarataxta í sinn vasa, heldur Landsvirkjun sem selur orku á skammtímamarkaði á mun dýrara verði en til langs tíma,“ segir Hinrik. Um þúsund fara sjálfkrafa í viðskipti við N1 rafmagn í hverjum mánuði Í maí 2020 gaf Orkustofnun síðan út leiðbeiningar um val á sölufyrirtæki til þrautavara og er það fyrirtæki tilnefnt sem hefur lægstan heildarkostnað á sex mánaða tímabili. Þegar fólk flytur inn í nýtt húsnæði fær það tilkynningu um að það hafi sjö daga til að velja raforkusala en ef það velur ekki fer það sjálfkrafa til fyrirtækisins sem Orkustofnun hefur valið í sex mánuði í senn. Frá upphafi hefur það fyrirtæki verið N1 Rafmagn sem hét áður Íslensk orkumiðlun. Á sama tíma og N1 Rafmagn hefur auglýst lægsta rafmagnsverð landsins á 6,44 krónur á kílóvattsstund hefur fólk sem er fært sjálfkrafa til fyrirtækisins greitt 11,16 krónur. Um það bil þúsund aðilar lenda hjá N1 í hverjum mánuði vegna þrautavaraleiðarinnar. Sagði það óraunhæft að bjóða sama verð N1 hvetur Orkustofnun til að hraða endurskoðun á þeim kvöðum sem orkusali til þrautavara þarf að undirgangast þar sem erfitt sé fyrir þann sem verður fyrir valinu að gera ráð fyrir þessum hóp í langtímaviðskiptum sínum við birgja. „Taka þarf inn í myndina ófyrirsjáanlegar verðsveiflur á orkumarkaði og getu orkusalans til að bjóða þessum hópi orku á sem bestu kjörum.“ Hinrik sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að það væri einfaldlega ekki raunhæft að bjóða öllum sama verð þar sem fyrirtækið þurfi að kaupa dýrari orku á skammtímamarkaði fyrir þrautavaraviðskiptavini. Hann segir N1 Rafmagn fagna virkri samkeppni og hafa það að leiðarljósi að bjóða lægsta verð hverju sinni. „Við hvetjum alla neytendur til að skrá sig sjálfa hjá þeim orkusala sem þeir kjósa, án aðkomu stjórnvalda.“
Neytendur Orkumál Verðlag Tengdar fréttir Hafnar því alfarið að N1 sé að blekkja neytendur Framkvæmdastjóri N1 hafnar því alfarið að viðskiptavinir séu beittir blekkingum í tengslum við þrautavaraleið á sölu raforku. Hann fagnar því að umræða eigi sér nú stað á raforkumarkaði og að fyrirkomulag þrautavaraleiðarinnar sé nú til skoðunar. 20. janúar 2022 14:31 Með til skoðunar kvartanir vegna meintra blekkinga raforkusala Orkustofnun er nú með til skoðunar kvartanir vegna meintra blekkinga raforkusala. Samkeppnisaðilar eru ósáttir við að eitt fyrirtæki fái þúsundir viðskiptavina á fölskum forsendum. 19. janúar 2022 22:47 „Ef þú gerir ekki neitt þá ferðu á hæsta rafmagnsverð Íslandssögunnar“ Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar gagnrýnir harðlega að ekki sé virkt eftirlit með sölu á raforku í landinu og segir að svindlað sé á neytendum með núverandi fyrirkomulagi. Hún segir óvanalegt að ríkið geti ákveðið til lengri tíma við hvaða fyrirtæki fólk eigi í viðskiptum við og kallar eftir aukinni umræðu. 19. janúar 2022 13:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Viðskipti innlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Viðskipti innlent Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Viðskipti innlent Farsímatekjur undir væntingum Viðskipti innlent „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun Stöð 2+ lækkar verð Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Mamman ítrekað læst úti en fær engar skaðabætur Flúðu dónalegan fararstjóra og fá ekki krónu Laumuðu fötunum með barnabílstólunum og fá lægri bætur Hótelið alls ekki sex hundruð metra frá ströndinni Athafnaleysi Katrínar geti skaðað hagsmuni landsmanna Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Hvað er opið um páskana? Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Fyrirtæki sem skili milljarða hagnaði leiki nú lausum hala Fólk sæki bætur sjálft til að sleppa við „blóðuga“ þóknun Gapandi yfir gjörbreyttu frumvarpi og varar við því Breytingarnar séu stórhættulegar og á kostnað launafólks Dældu skemmdri díselolíu á bíla sína Vara eindregið við frumvarpi sem leiði til verðbólgu Undrast að það séu hreinlega ekki óeirðir á Íslandi Mál tengd Base Parking á borði Neytendasamtakanna í hverjum mánuði Landsbankinn lækkar vexti Heyrðu fyrst frá blaðamanni um dómsmálið og að þau hefðu tapað því Gerði ekki gott mót og dæmdur til að veita afslátt Hefja uppbyggingu náttúrubaða við upphaf Gullna hringsins Sjá meira
Hafnar því alfarið að N1 sé að blekkja neytendur Framkvæmdastjóri N1 hafnar því alfarið að viðskiptavinir séu beittir blekkingum í tengslum við þrautavaraleið á sölu raforku. Hann fagnar því að umræða eigi sér nú stað á raforkumarkaði og að fyrirkomulag þrautavaraleiðarinnar sé nú til skoðunar. 20. janúar 2022 14:31
Með til skoðunar kvartanir vegna meintra blekkinga raforkusala Orkustofnun er nú með til skoðunar kvartanir vegna meintra blekkinga raforkusala. Samkeppnisaðilar eru ósáttir við að eitt fyrirtæki fái þúsundir viðskiptavina á fölskum forsendum. 19. janúar 2022 22:47
„Ef þú gerir ekki neitt þá ferðu á hæsta rafmagnsverð Íslandssögunnar“ Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar gagnrýnir harðlega að ekki sé virkt eftirlit með sölu á raforku í landinu og segir að svindlað sé á neytendum með núverandi fyrirkomulagi. Hún segir óvanalegt að ríkið geti ákveðið til lengri tíma við hvaða fyrirtæki fólk eigi í viðskiptum við og kallar eftir aukinni umræðu. 19. janúar 2022 13:00