„Við eigum alltaf að mæta trylltir til leiks“ Atli Arason skrifar 20. júní 2021 22:32 Sævar Atli með boltann fyrr í sumar. vísir/hulda margrét Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis, var augljóslega svekktur með 1-0 tapið gegn Keflavík er hann kom í viðtal við Vísi strax eftir leik. „
Þetta er súrt. Við byrjuðum leikinn ekki nægilega vel. Þeir áttu fyrstu 10 mínúturnar, við vorum lengi í gang og þeir skora úr föstu leikatriði sem við eigum klárlega að gera betur. Síðan er þetta jafnt, alveg stál í stál í fyrri hálfleik. Síðan komum við út í seinni hálfleik og erum þar miklu betri. Þeir liggja djúpt og við fengum 2-3 mjög góð færi til að jafna þennan leik en það datt ekki með okkur í dag,“ sagði Sævar Atli. Leiknir var eins og Sævar segir rosalega lengi í gang í dag. Keflavík átti öll hættulegu færi leiksins á fyrstu mínútunum. Leiknismenn sýndu lítið fram á við og það var ekki fyrr en á 75. mínútu leiksins þar sem fyrsta skot Leiknis á markramma Keflavíkur kemur. Sævar var spurður að því af hverju þeir voru svona lengi að komast í gang. „Ég veit það ekki. Mér fannst við alveg vera gíraðir í upphitun og svona en það er ekki hægt að taka mark á því. Þetta er góð spurning því við þurfum klárlega að gera betur í þessu því að við eigum alltaf að mæta trylltir til leiks,“ svaraði Sævar. Eftir flotta byrjun á mótinu hefur aðeins hallað undir hjá Leikni sem kom inn í þennan leik með tvö töp á bakinu. Gæti verið að töpin í undanförnum leikjum hafi setið eitthvað í Leiknismönnum í dag? „Nei alls ekki. Mér fannst við spila vel á móti HK í leik sem við töpuðum. KR leikurinn var algjörlega off en seinni hálfleikurinn í dag er góður. Ég hef engar áhyggjur, við þurfum bara að skora fleiri mörk,“ sagði Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis, að lokum.
Pepsi Max-deild karla Leiknir Reykjavík Mest lesið Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Körfubolti Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Körfubolti Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Íslenski boltinn Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti Syrgir fimmtán mánaða son sinn Sport Fleiri fréttir Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers FH fékk tvær sektir frá KSÍ Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið „Geggjað að hafa náð einum sigri gegn langbesta kvenna félagi á landinu“ „Aldrei verið eins stressuð í lífinu“ Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Baldvin með Íslandsmet og hársbreidd frá því að tryggja sig inn á EM Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Sjá meira
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti