Vilja fjarlægja minningu um hörmulega atburði og reisa eitthvað fallegt Vésteinn Örn Pétursson skrifar 8. júní 2021 19:16 Húsið hefur staðið nánast óhreyft frá því það brann 25. júní á síðasta ári. Vísir/Egill Framkvæmdir við að rífa brunarústirnar að Bræðraborgarstíg 1 í vesturbæ Reykjavíkur hófust í dag. Húsið brann seint í júnímánuði á síðasta ári með þeim afleiðingum að þrjú létu lífið. Talsmaður nýrra eigenda hússins segir vonir standa til að hægt verði að klára niðurrif hratt og vel. „
Við fengum starfsleyfi á fimmtudaginn og í gær fengum við leyfi til að þrengja götur og tryggja öryggi á svæðinu. Við byrjuðum bara um leið og þau mál voru í höfn,“ segir Runólfur Ágústsson, talsmaður Þorpsins vistfélags, sem keypti Bræðraborgarstíg 1 og 3 í janúar á þessu ári. Niðurrif á Bræðraborgarstíg 1 hófst um klukkan fjögur síðdegis í dag. Hann segir að fljótlega eftir kaupin hafi verið falast eftir leyfi til að fá að hefja framkvæmdir á svæðinu. „Þetta er náttúrulega langt ferli. Blessunarlega er það þannig að svona atburðir eru ekki að gerast á hverjum degi, þannig að það eru kannski ekki til skýrir verkferlar og þess vegna tekur þetta svona langan tíma,“ segir Runólfur. Hann segir marga koma að málinu og leyfisveitingum í tengslum við það. Nefnir þar byggingafulltrúa, heilbrigðiseftirlitið, umhverfisráðuneytið, tryggingafélög og fleiri. Nýtt búsetuform fyrir eldri konur Runólfur hefur áður nefnt að áætlað sé að framkvæmdum varðandi niðurrif hússins verði lokið 17. júní og þá verði búið að jafna það við jörðu. Hann segist vona að þau áform gangi eftir og að unnið sé eins hratt og hægt er. „Við erum að gera ráð fyrir að þetta taki að minnsta kosti ekki lengri tíma en tvær vikur. Við erum með átta vikna ramma sem við höfum til þess að klára þetta, en við erum að gera ráð fyrir að vinna þetta bara eins hratt og hægt er.“ Þar sem húsið stóð áður mun rísa nýtt hús sem hugsað verður sem húsnæðismöguleiki fyrir eldri konur og byggir á hugmynd sem kallast „baba yaga.“ „Smáíbúðir fyrir eldri konur, femínista, með mikilli sameign. Við erum að vinna þetta í samstarfi við félagsskap sem kallar sig Femínistar 60 plús.“ Runólfur segir að um sé að ræða búsetuform sem hefur rutt sér til rúms á Norðurlöndum, þar sem eldra fólk taki sig til og búi með fólki sem það eigi eitthvað sameiginlegt með. Í þessu tilfelli séu það lífsskoðanir sem ráði för, en Runólfur segir að allur gangur sé á því út frá hverju fólk sem kýs þetta búsetuform velji að byggja sambúðina á. „Til dæmis bara golf, eða hestar eða eitthvað. Þetta er svona kjarnasamfélagshugsjón svokölluð.“ Framkvæmdir við að rífa húsið að Bræðraborgarstíg 1 hófust í dag.Vísir/Egill Vilja reisa eitthvað gott og fallegt Runólfur segist merkja ákveðinn létti hjá fólki í nágrenni Bræðraborgarstígs 1, nú þegar framkvæmdir við að framkvæma brunarústirnar eru hafnar. „Þetta er búið að vera mein þarna og minning um hörmulega atburði. Okkar markmið er að klára þetta hratt og vel um leið og við fengum þessar heimildir, að rífa og þrífa.“ Runólfur segir að síðan verði ráðist beint í uppbyggingu. Markmiðið sé að á svæðinu rísi eitthvað gott og fallegt, sem mótvægi við þá hörmulegu atburði sem áttu sér stað í húsinu á síðasta ári. „Ég held að við getum sýnt þeim einstaklingum sem þarna misstu lífið mesta virðingu með því,“ segir Runólfur.
Bruni á Bræðraborgarstíg Reykjavík Skipulag Húsnæðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Sjá meira