Silja Mist til Orku náttúrunnar

Silja Mist Sigurkarlsdóttir, nýráðinn markaðsstjóri Orku náttúrunnar og markaðssérfræðingur Orkuveitu …
Silja Mist Sigurkarlsdóttir, nýráðinn markaðsstjóri Orku náttúrunnar og markaðssérfræðingur Orkuveitu Reykjavíkur. Ljósmynd/Gunnhildur Lind

Silja Mist Sigurkarlsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Orku náttúrunnar og markaðssérfræðingur Orkuveitu Reykjavíkur, að því er greint frá í tilkynningu frá ON.

Hún kemur til fyrirtækisins frá Nóa Síríus þar sem hún hefur gegnt stöðu markaðsstjóra síðustu ár. Silja verður hluti af einingu innan OR sem kallast Samskipti og samfélag en sú einnig sér um öll markaðs- og kynningarmál OR samstæðunnar.

Silja, sem er þrítug, hóf störf hjá Nóa Síríus árið 2016 eftir að hafa lokið námi í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík, fyrst sem vöruþróunarstjóri og síðar sem markaðsstjóri. Silja hefur meðfram vinnu sinni sinnt kennslu í markaðsfræðum og vöruþróun við Háskólann í Reykjavík.

Hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir störf sín

Hún segir reynslu síðustu sex ára muni koma til með að hjálpa henni í að takast á við þær áskoranir sem framundan eru hjá Orku náttúrunnar.

„Á raforkumarkaði ríkir afar spennandi samkeppnisumhverfi sem ég er spennt að takast á við með umhverfismálin sem ég brenn svo fyrir að leiðarljósi. Það er klárt mál að þegar kemur að orkuskiptunum eru áskoranirnar stórar og ég get ekki beðið eftir því að takast á við þær með því frábæra fólki sem ég veit að starfar hjá Orku náttúrunnar.“

Breki Logason, samskiptastjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir afar ánægjulegt að fá Silju Mist til liðs við samstæðuna enda hafi hún vakið verðskuldaða athygli fyrir störf sín hjá Nóa Siríus.

„Silja er með frábæra sýn og nálgun á markaðsmálin sem mun klárlega nýtast okkur í baráttunni í því kvika samkeppnisumhverfi sem raforkumarkaðurinn er.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK