Brynjar Þór: Maður var farinn að telja niður þessa síðustu leiki Árni Jóhannsson skrifar 10. maí 2021 21:32 Brynjar á vítalínunni. vísir/bára Brynjar Þór Björnsson átti góðan leik, þá sérstaklega þriðja leikhluta, þegar KR lagði ÍR í DHL-höllinni fyrr í kvöld 112-102. Kappinn er spenntur að mæta gömlum félögum í 8-liða úrslitum en hefði viljað heimavallarréttinn. „
Ef við erum með heimavallarrétt þá er ég mjög ánægður. Það verður ótrúlega gaman að mæta Valsmönnum og vafalaust hart tekið á því. Þetta verður bara veisla. Gaman að takast á við gamla félaga“, sagði Brynjar Þór Björnsson þegar hann var spurður út í þá staðreynd að þeir væru að fara mæta Valsmönnum í átta liða úrslitum. Blaðamaður ruglaðist eilítið og hélt að KR hefði náð heimavallarréttinum en það skýrir fyrstu setningu Brynjars. Varðandi leikinn í kvöld þá var Brynjar ánægðastur með sóknarleik sinna manna. „Við fórum að hitta. Við höfum ekki neitt á heimavelli í vetur og við höfum bara verið hræðilega slakir. Svo spilar ÍR liðið ekki mikla vörn. Það opnaðist vel fyrir skytturnar okkar og við loksins hittum. Við hefðum unnið þennan leik stærra ef við hefðum spilað vott af vörn sjálfir því mér fannst þeir bara bíða eftir því að tapa. Við náðum hinsvegar ekki að stoppa þá þannig að þeir héldu sér alltaf inn í leiknum.“ Brynjar var þá spurður að því hvort KR hafi þurft að gefa aðeins eftir í varnarleiknum til að ná betri sóknarleik. „Já engin spurning. Það má hins vegar ekki taka það frá ÍR-ingum að þeir hafa góða sóknarmenn sem kunna að skora en þeirra vandamál er varnarleikurinn.“ Brynjar leiddi áhlaupið sem skóp sigurinn í raun og veru í þriðja leikhluta þegar hann dúndraði niður fjórum þriggja stiga skotum og var hann spurður út í hvernig standið á honum væri eftir erfiða deildarkeppni og fyrir erfiða úrslitakeppni. „Hún er að verða mjög góð. Maður er orðinn spenntur fyrir úrslitakeppninni og verð ég að segja alveg eins og er að maður var farinn að telja niður þessa síðustu leiki. Þetta er búið að vera mjög skrýtið tímabil, mjög langt, byrjaði í ágúst september og nú er kominn miður maí og það er óvenjulegt en ég vona til þess að það verði aðeins búið að opna fyrir áhorfendur og að maður finni smá grill lykt í loftinu og fái þessa úrslitakeppnis tilfinningu í kroppinn. Vissulega skiptir það máli að það hafi verið fleiri áhorfendur í kvöld en oft áður. Maður er í þessu til að spila fyrir framan fólkið. Það er gaman þegar verið er að skjóta á mann eða þegar maður fær stuðninginn. Það hefur vissulega áhrif og þar af leiðandi hefur þetta tímabil verið mjög sérstakt en við tökum því að vera að spila.“
KR Dominos-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: KR - ÍR 112-99 | KR-ingar með góðan sigur sem var samt ekki nóg til að halda 4. sætinu Góður seinni hálfleikur KR-inga gerði þeim kleyft að vinna ÍR nokkuð þægilega 112-99. Þeir misstu samt af heimavallarréttinum í 8-liða úrslitum þar sem þeir mæta Valsmönnum. 10. maí 2021 21:12 Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn NFL-stjarna á tíu börn og hefur eignast fjögur síðasta árið Sport LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti Fleiri fréttir Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik Sjá meira
Leik lokið: KR - ÍR 112-99 | KR-ingar með góðan sigur sem var samt ekki nóg til að halda 4. sætinu Góður seinni hálfleikur KR-inga gerði þeim kleyft að vinna ÍR nokkuð þægilega 112-99. Þeir misstu samt af heimavallarréttinum í 8-liða úrslitum þar sem þeir mæta Valsmönnum. 10. maí 2021 21:12
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum