Christie sagður ætla að lýsa yfir framboði Kjartan Kjartansson skrifar 31. maí 2023 12:05 Chris Christie var náinn samverkamaður Trump í forsetakosningunum 2016 en fékk þó ekkert embætti í stjórn hans. AP/Charles Krupa Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri New Jersey og ráðgjafi Donalds Trump, er sagður ætla að lýsa yfir forsetaframboði í næstu viku. Stuðningsmenn Christie hafa hleypti nýrri pólitískri aðgerðanefnd af stokkunum til þess að styðja framboðið.
Þó að Christie hafi ekki riðið feitum hesti frá forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar árið 2016 þykir framboð hans nú sæta tíðindum. Hann var ráðgjafi framboðs Trump og þótti lengi náinn fyrrverandi forsetanum. Undanfarið hefur þó myndast vík á milli vina og Christie hefur kallað Trump „gungu“ og strengjabúðu Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. Christie hefur starfað sem stjórnmálaskýrandi hjá ABC-sjónvarpsstöðinni upp á síðkastið. Christie ætlar að lýsa yfir framboði sínu á viðburði í New Hampshire á þriðjudag, að sögn vefmiðilsins Axios. New Hampshire er eitt af fyrstu ríkjunum þar sem forval verður haldið á næsta ári. New York Times greindi frá því í gær að stuðningsmenn Christie hefðu stofnað svonefnda pólitíska aðgerðanefnd honum til stuðnings. Slíkar nefndir mega safna ótakmörkuðum fjárframlögum en mega að nafinu til ekki eiga samráð við frambjóðanda. Lítil eftirspurn eftir frambjóðendum eins og Christie Fyrir fram eru möguleikar Christie í forvalinu taldir takmarkaðir. Hann þarf meðal annars að etja kappi við Trump sjálfan sem hefur tangarhald á stórum hluta kjósenda repúblikana og Ron DeSantis sem þótti á tímabili standa vel að vígi. Lítil eftirspurn virðist innan flokksins eftir „hefðbundnari“ stjórnmálamanni eins og Christie sem stilla sér upp sem valkosti við Trump. Áður en Christie tók þátt í forsetaframboði Trump var hann þekktur sem ríkisstjóri New Jersey. Hann naut nokkuð almennra vinsælda sem slíkur eftir að fellibylurinn Sandy reið yfir ríkið árið 2012. Verulega fjaraði undan stuðningi við Christie eftir að upplýst var að aðstoðarmenn hans og skipaðir fulltrúar ollu vísvitandi umferðarteppum til að koma höggi á pólitískan andstæðing ríkisstjórans. Í kjölfar hneykslismálanna mældist Christie með minnsta stuðning nokkurs ríkisstjóra New Jersey.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Tengdar fréttir DeSantis staðfestir forsetaframboð sitt Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, hefur lýst formlega yfir framboði sínu til forseta Bandaríkjanna. DeSantis hefur sagst vera sá eini í forvali Repúblikana sem eigi möguleika á að skáka Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, í komandi kosningum. 24. maí 2023 23:30 Enn bætist í hóp frambjóðenda hjá repúblikönum Tíundi frambjóðandinn bætist við í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar á næsta ári þegar Tim Scott, öldungadeildarþingmaður flokksins, lýsir formlega yfir framboði sínu í dag. Fastlega er búist við því að Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og helsti áskorandi Donalds Trump, kynni sitt framboð í vikunni. 22. maí 2023 13:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Fleiri fréttir Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Sjá meira
DeSantis staðfestir forsetaframboð sitt Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, hefur lýst formlega yfir framboði sínu til forseta Bandaríkjanna. DeSantis hefur sagst vera sá eini í forvali Repúblikana sem eigi möguleika á að skáka Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, í komandi kosningum. 24. maí 2023 23:30
Enn bætist í hóp frambjóðenda hjá repúblikönum Tíundi frambjóðandinn bætist við í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar á næsta ári þegar Tim Scott, öldungadeildarþingmaður flokksins, lýsir formlega yfir framboði sínu í dag. Fastlega er búist við því að Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og helsti áskorandi Donalds Trump, kynni sitt framboð í vikunni. 22. maí 2023 13:59
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent