Greindist með omíkron innan við mánuði eftir fyrra smit Sunna Sæmundsdóttir skrifar 6. desember 2021 19:03 Kolfinna Frigg Sigurðardóttir greindist tvisvar með kórónuveiruna á einum mánuði. Fullbólusett íslensk kona greindist tvisvar með kórónuveiruna á einum mánuði og er nú í einangrun með omíkron afbrigðið. Hún segir nokkurn mun á einkennum og veit ekki hvernig hún smitaðist.
Ekki er algengt að greinast tvisvar með kórónuveiruna. Frá upphafi faraldursins hafa um 18.600 manns greinst með veiruna hér á landi en einungis um tuttugu til þrjátíu manns hafa greinst tvisvar. Í þeirra hópi er Kolfinna Frigg Sigurðardóttir sem er nú í einangrun á sóttvarnahóteli. „Ég greinist með covid þriðja nóvember og fer í einangrun og allt sem því fylgir og síðan verð ég mjög hissa þegar ég greinist aftur þriðja desember,“ segir Kolfinna. Þrátt fyrir að vera fullbólusett síðan í ágúst greindist Kolfinna með kórónuveiruna með nákvæmlega mánaðar millibili - og í seinna sinn með hið nýja omíkron afbrigði. Hún segir nokkurn mun á einkennum. „Ég er aðeins meira veik núna. Ég var ótrúlega heppin síðast. Ég var ekki með mikil einkenni þá,“ segir Kolfinna. Sóttvarnalæknir hefur sagt of snemmt að fullyrða eitthvað um vörn bóluefna og mótefna vegna fyrri smita gegn nýja afbrigðinu en von er á niðurstöðum rannsókna á næstunni. Kolfinna veit ekki hvernig hún smitaðist aftur en hún greindist þegar hún fór í hraðpróf vegna afmælis sem hún hafði ætlað í. Því var fylgt eftir með PCR prófi og síðan mótefnamælingu vegna gruns um að niðurstaðan hefði verið jákvæð þar sem stutt var liðið frá fyrri veikindum. „Og út úr því kemur að ég er bara aftur komin með covid. Og sé að fara aftur inn í einagrun.“ Hún segist hafa haldið sig til hlés þrátt fyrir að hafa fengið misvísandi leiðbeiningar varðandi einangrun svo stuttu eftir staðfest smit. „Ég hélt mig inni og var út af fyrir mig vegna þess að ég er búin að fá covid einu sinni og veit hversu mikil smithættan er. Þú þarft ekki nema að vera nálægt einhverjum.“ Ekki hefur verið algengt að greinast tvisvar með kórónuveiruna.vísir/Vilhelm Hún segir alla einangrunina taka nokkuð á. „Ég fékk að fara í nýtt herbergi, ég var fyrst á öðru sóttvarnarhóteli og var færð yfir á annað. Það munar miklu að herbergið sé öðruvísi og ég er reyndar búin að breyta öllu inni á því til þess að gera þetta heimilislegt. En maður verður að komast í gegnum þetta með því að finna sér eitthvað að gera. Hlusta á bækur, horfa á þætti og vera ekki of mikið uppi í rúmi.“ Kolfinna færir starfsfólki sóttvarnarhótela bestu þakkir; þar sem hún hefur nú varið dágóðum tíma síðasta mánuðinn og biður fólk um að fara varlega. „Það er ótrúlega gott fólk að vinna á þessum hótelum og þau eru að standa sig ótrúlega vel og ég vil bara segja takk og það er vonandi að fólk fái ekki þetta afbrigði. Að fólk fái þetta bara einu sinni - eða aldrei,“ segir Kolfinna.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Tengdar fréttir Þórólfur leggur ekki til hertar aðgerðir Heilbrigðisráðherra segir að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggi ekki til hertar aðgerðir í minnisblaði sínu, sem hann skilaði ráðherranum um helgina. Nýjar aðgerðir verða kynntar eftir ríkisstjórnarfund á morgun, í kring um hádegi. 6. desember 2021 13:47 Sóttvarnalæknir hvetur alla til að þiggja örvunarskammt Sú staðreynd að örvunarskammtur gegn SARS-CoV-2, það er að segja þriðji skammturinn, virðist veita 90 prósent meiri vernd en grunnbólusetning ætti að vera öllum hvatning til að þiggja bólusetningu og örvunarskammt. 6. desember 2021 12:34 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Fleiri fréttir „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Sjá meira
Þórólfur leggur ekki til hertar aðgerðir Heilbrigðisráðherra segir að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggi ekki til hertar aðgerðir í minnisblaði sínu, sem hann skilaði ráðherranum um helgina. Nýjar aðgerðir verða kynntar eftir ríkisstjórnarfund á morgun, í kring um hádegi. 6. desember 2021 13:47
Sóttvarnalæknir hvetur alla til að þiggja örvunarskammt Sú staðreynd að örvunarskammtur gegn SARS-CoV-2, það er að segja þriðji skammturinn, virðist veita 90 prósent meiri vernd en grunnbólusetning ætti að vera öllum hvatning til að þiggja bólusetningu og örvunarskammt. 6. desember 2021 12:34