Fyrsta sýnishornið úr Svörtu söndum Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 26. nóvember 2021 07:01 Svörtu sandar eru nýir þættir frá Baldvini Z. Skjáskot Á jóladag verður sýndur á Stöð 2 fyrsti þátturinn af Svörtu söndum, í leikstjórn Baldvin Z. Hér frumsýnum við fyrsta sýnishornið úr þáttunum sem framleiddir eru af Glassriver.
Stöð 2 ætlar að bjóða upp á jólaveislu og sýna tvo þætti yfir hátíðina svo næsti þáttur verður sýndur strax kvöldið eftir á annan í jólum. Eftir það verður þáttaröðin sýnd á sunnudagskvöldum og eru í heildina átta talsins. Margir hafa tekið eftir blóðugri dagsetningu á samfélagsmiðlum síðustu daga, 25.12, en það er dagurinn sem fyrsti þáttur fer í loftið. Handritshöfundar þáttanna eru Baldvin Z, Aldís Amah Hamilton og Ragnar Jónsson. Aldís fer sjálf með aðalhlutverkið í þáttunum, hlutverk Anítu. Með önnur helstu hlutverk fara Þór Tulinius sem Ragnar, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sem Elín, Ævar Þór Benediktsson sem Gústi og Kolbeinn Arnbjörnsson sem Salomon. „Aníta, þrítug lögreglukona, neyðist aftur á æskuslóðirnar sem hún flúði fyrir 14 árum. Uppgjör við móður hennar er óumflýjanlegt en líkfundur af ungri konu kollvarpar öllu. Aníta sogast niður dimman hyl fortíðar í leit að mögulegum fjöldamorðingja og uppgjörið breytist í martröð.“ Fyrsta sýnishornið úr þessum nýju spennuþáttum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Svörtu sandar - sýnishorn Svörtu sandar Aníta, þrítug lögreglukona, tekur að sér starf á æskuslóðum hennar sem er eina staðan sem henni býðst eftir að hafa verið neydd til að segja upp í Reykjavík. Hún hefur ekki komið í þorpið í 14 ár, sem er orðið túristagildra, umkringt svörtum söndum. Verst af öllu er að hún þarf að flytja inn til móður sinnar, Elínar, en samband þeirra er í molum í skugga erfiðrar fortíðar. Þegar Aníta kemur í bæinn finnst lík ungrar konu við sandfjöruna, sem virðist hafa hrapað af bjarginu fyrir ofan ströndina. Rannsókn á málinu hefst ásamt núverandi lögreglustjóranum Ragnari, þorpslækninum Salomon og lögregluteyminu á staðnum. Ekkert saknæmt virðist hafa átt sér stað fyrr en vinkona hinnar látnu finnst seinna um kvöldið, hrakin og alblóðug. Á meðan rannsóknin heldur áfram að vinda upp á sig endar Aníta í miðju eldheits ástarþríhyrnings sem er ekki að einfalda málin fyrir henni. Það kemur í ljós að lögreglan á staðnum hefur ekki sinnt rannsóknum sem skyldi og möguleg tengsl eru á milli fleiri mála. Uppgjör við móður hennar er óumflýjanlegt. Aníta sogast niður dimman hyl fortíðar í leit að mögulegum fjöldamorðingja og uppgjörið breytist í martröð. Svörtu sandar eru frumsýndir 25. desember á Stöð 2. Þættirnir eru framleiddir af Glassriver.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Svörtu sandar Mest lesið Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun Laufey skein skært á Met Gala Tíska og hönnun Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Lífið Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Lífið Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Lífið „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ Tónlist Fleiri fréttir Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Gæsahúð og allur tilfinningaskalinn á forsýningu Mari Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Frumsýning á Vísi: Segja þjóðinni loksins frá harðræðinu á vistheimilunum Ljósbrot meðal opnunarmynda í Cannes Hámhorfið: Hvað eru grafískir hönnuðir að horfa á? Cox segir Phoenix ömurlegan sem Napóleon Komu saman vegna þrjátíu ára afmælis Pulp Fiction Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins Keanu Reeves mun leika helsta keppinaut Sonic Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Hámhorfið: Hvað eru landsliðskonur í knattspyrnu að horfa á? Fylgdi Mari Jaersk á æskuslóðir: „Hann stakk hníf inn í lungun á pabba tvisvar“ Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Bridget Jones 4 kemur út á næsta ári Mun túlka Springsteen Finna enn gríðarlega sterk áhrif Eurovision-myndarinnar Verður aftur laglega ljóskan Elle Woods Svar Íslands og Sviss við Forrest Gump mætir á skjáinn Sjá meira