Handóðu prjónararnir illa sviknir þegar Freysteinn birtist í skyrtunni einni á skjánum Jakob Bjarnar skrifar 8. apríl 2021 12:04 Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands skartar gjarnan afar fallegum peysum, sem svo eru til þess fallnar að gleðja handóðu prjónarana. vísir/egill Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur er heitasta prjónapeysumódel landsins.
Á tímum Covid hafa vinsældir prjónaskaps aukist svo um munar. Á Facebook er afar virkur hópur sem heitir „Handóðir prjónarar“. Meðlimir eru hvorki meira né minna en 36 þúsund og þar er prjónaskapur ræddur fram og til baka. Einn sem vakið hefur sérstaka athygli á þeim vettvangi er Freysteinn Sigmundsson en hann hefur, í tengslum við eldsumbrot á Reykjanesi verið tíður gestur í fjölmiðlum. Og glatt hjörtu handóðu prjónarana því oftar en ekki er hann í fallegum ullarpeysum. Funheitur meðal hinna handóðu prjónara Því urðu vonbrigðin nokkur þegar Freysteinn mætti í Kastljósviðtal í gærkvöldi og var þá bara í skyrtunni. Handóðu prjónararnir urðu fyrir verulegum vonbrigðum: „Þvílík vonbrigði,“ segir Guðrún Grettis og Anna Steinunn Þengilsdóttir segir að ekki sé hægt að bjóða manni „uppáetta“. Hulda Fríða Berndsen segist hálf svekkt og Hjálmfríður Valgarðsdóttir segist hafa beðið spennt eftir nýrri peysu. „Öll þjóðin bíður eftir að hann mæti í nýrri peysu en hann var í mjög fallegri skyrtu,“ segir Helga Jörgensen og þannig hrannast athugasemdirnar upp á vettvangi handóðu prjónaranna. En allt er þetta á góðlátlegum nótum. Handóðu prjónararnir urðu fyrir verulegum vonbrigðum þegar Freysteinn birtist á skjánum og ekki í peysu. En þeir voru þó sammála um að skyrtan væri fín.skjáskot Freysteinn hlær við þegar Vísir bar þetta undir hann. „Ég bara … það er mismunandi í hverju ég er klæddur. Ég hef áður komið í Kastljósið og þá var ég í peysu. Ég er oft í einhverri peysu eða ullarklæðnaði. Konan mín er mikil handavinnukona og ég hef gaman að því að vera í flíkum sem hún hefur prjónað.“ Eiginkona Freysteins er Ástþrúður Sif Sveinsdóttir, sannkallaður meistari með prjónana auk þess sem hún hannar margar þær flíkur sem hún prjónar. En hvernig er þetta, að vera svona heitur meðal hinna handóðu prjónara? „Það er … gaman að sjá áhuga á íslensku handverki. Það er bara hið besta mál ef fólk hefur gaman að því að fylgjast með hvað er prjónað; og umræðum um það.“ Gaman að vera í peysum sem konan hefur prjónað Freysteinn segist ekki vera á samfélagsmiðlum sjálfur en honum hefur verið bent á þessar vangaveltur og hann hefur gaman að. Þá rifjar Freysteinn upp að þetta hafi byrjað þegar haldinn var fréttamannafundur og jarðeðlisfræðingar voru að reyna að átta sig á því að það væri kvikuinnskot á Reykjanesskaga. Þá var hann í prjónaðri peysu grænni, með mynstri sem heitir drangar, og það kallaðist skemmtilega á við skjálftalínurit af jarðhræringum sem var í bakgrunni. Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður gerði sér svo mat úr þessu í sínum þætti Vikulokunum. „Ég hef verið í prjónuðum peysum enda mikið úti við. Mér finnst þær fallegar og gaman af að vera í þeim, ekki síst þá peysum sem konan hefur prjónað.“
Eldgos og jarðhræringar Prjónaskapur Eldgos í Fagradalsfjalli Handverk Mest lesið Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Lífið Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Lífið „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Lífið Bieber-hjónin eiga von á barni Lífið Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Lífið Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus Lífið „Eins og verstu unglingar í sleepover“ Makamál „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Lífið Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Lífið Fleiri fréttir Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Bieber-hjónin eiga von á barni Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hafa komist að samkomulagi vegna andláta á Astroworld Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Náttúrulegar bótox-meðferðir án sprautunála „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Raggi Bjarna þekkti ekki Friðrik Dór með nafni Friðrik Ómar kynnir stig Íslands í Eurovision Ian Gelder úr Game of Thrones látinn „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Svakalega erfitt en stórkostlegt Anníe Mist fór í keisaraskurð Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum Sötrað á Kalda í tíu ár Grease-stjarnan Susan Buckner látin Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Hera komst ekki áfram „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Sjá meira