Innlent

Skarðshlíðarleikskóli lokaður í dag vegna smits meðal nemenda

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skarðshlíðarleikskóli í Hafnarfirði.
Skarðshlíðarleikskóli í Hafnarfirði.

Skarðshlíðarleikskóli í Hafnarfjarðarbæ var lokaður í dag vegna Covid-19 smits. Um er að ræða eitt barn af um 80 sem skráð eru á fjögurra deilda leikskólann.

Samkvæmt upplýsingum frá Hafnarfjarðarbæ eru starfsmenn og börn í úrvinnslusóttkví í dag, samkvæmt tilmælum frá rakningarteymi almannavarna, en enn er óvíst hvort leikskólinn verður einnig lokaður á morgun.

Foreldrar verða látnir vita í dag eða kvöld.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×