Staðfestu að víkingar voru í Ameríku fyrir sléttum þúsund árum Samúel Karl Ólason skrifar 20. október 2021 18:11 Langhús sem reist hefur verið í L'Anse aux Meadows á Nýfundnalandi. Getty/DeAgostini Alþjóðlegt teymi vísindamanna hefur staðfest að víkingar frá Grænlandi numu land á Nýfundnalandi fyrir nákvæmlega þúsund árum síðan. Lengi hefur verið vitað að víkingar fundu Norður-Ameríku en ekki nákvæmlega hvenær.
Það hefur verið staðfest með fornleifauppgreftri í L‘Anse aux Meadows á Nýfundnalandi að víkingar voru í Norður-Ameríku um árið 1000. Nú hefur verið staðfest að víkingar bjuggu í L‘Anse Aux Meadows árið 1021, fyrir sléttum þúsund árum. Það er 471 ári áður en Christofer Kólumbus sigldi yfir Atlantshafið og „fann“ Ameríku. Í síðasta mánuði birti latínuprófessorinn Paolo Chiesa grein um þá uppgötvun sína að ítalskur prestur hefði vitað um tilvist Norður-Ameríku um miðja fjórtándu öld, eða um 150 árum fyrir ferð Kólumbusar. Í grein sem birtist í Nature í dag segja vísindamenn að þeir hafi aldursgreint timbur sem fannst í L‘Anse aux Meadows. Með því að greina timbur úr þremur mismunandi trjám og taka mið af því þegar mikil sólargeislun barst til jarðar í sólargosi árið 993 var hægt að finna nákvæmari tímasetningar en áður hefur verið hægt. Öll tréin þrjú reyndust hafa verið felld árið 1021. Áhugasamir geta lesið nánar um aðferðir vísindamannanna hér. Í greininni kemur fram að talið sé að Norrænir menn hafi haldið til á Nýfundnalandi í þrjú til þrettán ár. Eftir það hafi þeir snúið aftur til Grænlands. Mest hafi um hundrað manns búið í L´Anse Aux Meadows. Sjá einnig: Tóftirnar í Kanada passa við lýsingar í Vínlandssögunum Fyrir nokkrum árum heimsótti Kristján Már Unnarsson L'Anes Aux Meadows fyrir þættina Landnemarnir. Hann ræddi einnig við sænska fornleifafræðinginn Birgitta Wallace sem sagðist sannfærð um að sjálfur Leifur Eiríksson hefði reist búðirnar á Nýfundnalandi.
Fornminjar Kanada Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Innlent Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Næsta gos gæti hafist á hverri stundu Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Sjá meira