Hrækti á leikmann Fjölnis: „Óafsakanlegt á alla vegu“ Sindri Sverrisson skrifar 26. maí 2023 08:01 Rauða spjaldið fór á loft í þriðja sinn í leiknum, seint í uppbótartíma, eftir að Gonzalo Zamorano hrækti á mótherja. Skjáskot/youtube/@Lengjudeildin Gonzalo Zamorano, sóknarmaður Selfoss, var einn af þremur sem fengu rautt spjald í leik gegn Fjölni í Lengjudeildinni í fótbolta á dögunum. Ástæðan var óvenjuleg en Zamorano varð uppvís að því að hrækja á andstæðing.
Samkvæmt niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar KSÍ á þriðjudaginn fékk Zamorano eins leiks bann fyrir brot sitt, rétt eins og liðsfélagi hans Þorlákur Breki Baxter sem samkvæmt Fótbolta.net fékk gult spjald fyrir leikaraskap og svo annað fyrir brot. Hér að neðan má sjá þegar Zamorano hrækti á andstæðing sinn, Dag Inga Axelsson sem aðeins rétt áður hafði komið inn á sem varamaður. Atvikið átti sér stað seint í uppbótartíma, þegar leikurinn var stopp vegna brots Selfyssinga í vítateig Fjölnis. Heimamenn í Selfossi voru 2-1 undir og því að flýta sér til að reyna að jafna metin. Zamorano fór til að sækja boltann en Dagur spyrnti honum framhjá honum, í átt að brotsvæðinu, og brást sá fyrrnefndi við með því að hrækja. Dómari leiksins virtist ekki sjá það en leitaði til aðstoðardómara og gaf svo beint rautt spjald. Selfyssingurinn Gary Martin tjáði sig um rauðu spjöldin sem liðsfélagar hans fengu, í hlaðvarpsþætti 433.is. „Rauða spjaldið á Breka var fótboltalegs eðlis. Það sem Gonzalo gerði var óafsakanlegt á alla vegu og hann veit það. Við erum heppnir að þeir fengu báðir einn leik í bann,“ sagði Martin. Zamorano, sem er 27 ára, hefur leikið á Íslandi frá árinu 2017 með Hugin, Víkingi Ó., ÍA, ÍBV og svo Selfossi síðan í fyrra. Hann skoraði ellefu mörk í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð. Þriðji leikmaðurinn til að fá rautt spjald í leiknum á Selfossi á sunnudaginn var Sigurvin Reynisson, leikmaður Fjölnis. Fjölnismenn unnu eins og fyrr segir 2-1 sigur, þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik, og eru eitt þriggja liða sem eru efst í deildinni með sjö stig hvert. Selfoss er með þrjú stig, eftir þrjár umferðir.
Lengjudeild karla UMF Selfoss Fjölnir Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Handbolti Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Fótbolti Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Handbolti Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp Fótbolti Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Handbolti Fleiri fréttir „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp „Mbappé kann ekki að vera hetja“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Sjá meira