Arnór Atla: Finnst möguleikarnir í milliriðlinum fínir og hef tröllatrú á liðinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. janúar 2022 09:01 Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Bjarki Már Elísson fagna eftir leikinn gegn Ungverjalandi. getty/Sanjin Strukic Arnór Atlason segir að leikurinn gegn Dönum verði afar erfiður fyrir Íslendinga. Hann hefur samt mikla trú á íslenska liðinu í milliriðlinum á EM.
Ísland fór með tvö stig í milliriðil. Þetta var ljóst eftir sigur á heimaliði Ungverjalands, 31-30, í fyrradag. Í milliriðlinum mætir Ísland Danmörku, Frakklandi, Króatíu og Svartfjallalandi. Fyrsti leikur íslenska liðsins er gegn því danska í kvöld. Fáir Íslendingar þekkja danska handboltann jafn vel og Arnór. Hann spilaði þar um árabil og er í dag aðstoðarþjálfari Álaborgar auk þess sem hann þjálfar U-20 árs landslið Dana. Arnór var gestur EM-hlaðvarpsins þar sem hann ræddi við Stefán Árna Pálsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson um leikinn í kvöld og framhaldið hjá íslenska liðinu. Lausnin að bakka? Róbert spurði Arnór meðal annars hvernig hann myndi skipuleggja varnarleik gegn sóknarleik Íslands. „Mér finnst rosalega erfitt að plana varnarleik á móti því það geta komið árásir úr öllum stöðum. Aron [Pálmarsson], Gísli [Þorgeir Kristjánsson] og Ómar [Ingi Magnússon] eru allir rosalega góðir maður gegn manni,“ sagði Arnór. Arnór Atlason er einn farsælasti landsliðsmaður Íslands.getty/Christof Koepsel „Út frá leikjunum okkar hingað til höfum við ekki skotið mikið fyrir utan þannig að það væri kannski allt í lagi að vera dálítið passívir á okkur og sjá hvort við myndum skjóta fyrir utan. Svo myndi ég leggja áherslu á að stoppa boltann og ekki leyfa Gísla og Ómari að vinna tvo menn og losa boltann trekk í trekk.“ Engin óskastaða fyrir Møllgaard Arnór þekkir helsta varnarmann Dana, Henrik Møllgaard, vel en hann leikur með Álaborg. Hann segir að honum líði betur með að verjast stórum og líkamlega sterkum leikmönnum frekar en lágvöxnum og kvikum. „Það er engin draumastaða fyrir hann að mæta þessum minni, sneggri mönnum. Hann vill frekar hafa þá stóra og þunga. Þar er hann bestur. Ég held að hann hlakki ekkert til að mæta Ómari og Gísla,“ sagði Arnór. Ekki fengið mikla keppni Danir hafa eru ekki árennilegir enda unnið alla leiki sína á EM stórt. Fyrir mótið unnu þeir svo Norðmenn með tíu marka mun í vináttulandsleik. „Þeir hafa verið algjörlega frábærir hingað til en það er kannski heldur ekki gott að hafa ekki farið í neina alvöru spennuleiki. Þeir hafa lítið þurft að hafa fyrir þessu en spilað frábærlega. Að mörgu leyti spila þeir svipaðan sóknarleik og við,“ sagði Arnór. Mikkel Hansen og félagar í danska landsliðinu unnu leikina sína þrjá í riðlakeppninni á EM með samtals þrjátíu mörkum.getty/Kolektiff Images „Þetta einkennist af mörgum árásum, sérstaklega eftir að þeir fengu [Mathias] Gidsel inn í hægri skyttuna. Þeir [Mads] Mensah, [Jacob] Holm og [Rasmus] Lauge eru allir rosalega góðir maður á mann. Svo er Mikkel [Hansen] þarna til að taka skotin og síðustu sendinguna. Það verður strembið hvað við eigum að gera. Ef við verðum svona framarlega eins og við höfum oft viljað munu þeir örugglega senda Gidsel og Lauge í árásir allan tímann. Það verður áhugavert að sjá hvernig við leysum það.“ Ótrúlega spenntur fyrir þessu Arnór telur möguleika Íslands í milliriðlinum góða. „Mér finnst möguleikarnir fínir og hef tröllatrú á þessu liði. Sérstaklega þar sem við tókum tvö stig með okkur, erum við í mjög fínni stöðu,“ sagði Arnór. „Mér finnst við eiga að vinna Svartfellinga. Króatarnir eru mjög vængbrotnir, hafa lent illa í veirunni og svo er [Domagoj] Duvnjak meiddur. Mér finnst við eiga mjög góða möguleika gegn þeim. Svo vitum við allir hvað gerðist fyrir Frakka fyrir mót og þeir hafa líka lent í einhverjum veikindum núna. Það er ákveðnir möguleikar þar líka þannig ég er ótrúlega spenntur fyrir þessu.“ Hlusta má á EM-hlaðvarpið í spilaranum hér fyrir ofan. Spjallið við Arnór hefst á 26:30 og lýkur á 40:30.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Sjá meira